Réttur - 01.08.1964, Blaðsíða 32
160
R E T T U R
bókmennta, þá má alþýðan ekki gleyma hinum sígildu ástungu-
ritum hans, allt frá „Eldskírninni“ og „Heimspeki eymdarinnar“ til
„Rauðu hættunnar“, „Refskákar auðvaldsins“ og ótal flairi smærri
ritgreina.
Þess vegna hugsar íslenzk alþýða með hlýjum hug, þakklæti og
aðdáun til Þórbergs Þórðarsonar á þessum tímamótum lífs hans.
RITFREGN
THE ORDEAL OF BRITISH
GUYANA. Monthly Review. July
August 1964.
Júlí—ágúst hefti bandaríska tíma-
ritsins Monthly Review er alveg helg-
að baráttu alþýðunnar í brezku Guy-
ana. Heftið er 132 síðna bók eftir
Philip Reno, bandarískan mennta-
mann, sem rannsakað hefur ástandið
í brezku Guyana og sögu þessarar
brezku nýlendu, sem ekki fær sjálf-
stæði enn, af því þjúðin er of róttæk.
Rókin heitir „Eldraun brezku Guy-
ana“ og er þar mjög vel rakin saga
frelsisbaráttunnar þar og erfiðleikar
PPP (People’s Progressive Party,
Framsóknarflokkur alþýðunnar), en
sá flokkur var hinn fyrsti í Vestur-
heimi, að vinna meirihluta þjóðar til
fylgis við sósíalistíska stefnu og
mynda sósíalistiska stjórn undir for-
ustu þeirra hjónanna Cheddi og Janet
Jagan 1953. Er síðan rakin öll véla-
brögð brezka og bandaríska auðvalds-
ins við að reyna að eyðileggja lýð-
ræðislega kosna stjórn alþýðunnar
þar í landi. Er mjög lærdómsríkt fyr-
ir menn að kynna sér þá sögu, ekki
sízt fyrir þá, sem enn kynnu að halda
að brezkt og bandarískt auðvald virði
reglur lýðræðisins, ef það finnur sig
nógu sterkt til að traðka þær undir
fótum.