Réttur - 01.11.1965, Síða 3
RÉTTUR
211
menn eru bundnir gengistryggingu á lánum sínum. En stór-
kaupmenn Reykjavíkur draga bara féð út úr rekstrinum og
auka svo reksturslánin eins og dæmin sýna.
í fimmta lagi: frelsi til skattsvika. Meðan launþegar stynja
íindan sköttunum, skammtar verzlunarauðvaldið sér skattana
sjálft og útsvörin — eins og skattskrárnar sanna.
í sjötta lagi: forréttindi til áróðurs. Til þess að blekkja
almenning og véla hann til fylgis við sig, hafa stórkaupmenn
Reykjavíkur fyrst og fremst Morgunblaðið, sem þeir kúguðu
eigandann til að selja sér fyrir 40 árum í skjóli auglýsinga-
valds síns. Þeir gera Morgunblaðið að stórgróðafyrirtæki
með auglýsingum sínum. Síðan draga þeir auglýsingarnar
frá á skattskýrslum og láta þannig ríkið borga ljónspartinn
af auglýsingunum. Þannig gera þeir sér prentfrelsið í senn
að féþúfu og áróðurstæki, meðan alþýðan verður að fórna
stórfé til að halda úti blöðum sínum.
Baráttan fyrir frelsi og framförum stendur um það hvort
hnekkja skuli forréttindum verzlunarauðvaldsins á hinum
ýmsu sviðum: Hvort koma skuli á verðlagsákvörðunum og
— eftirliti, til að stemma stigu við dýrtíð og vernda almenn-
ing, — hvort koma skuli á heildarstjórn á fjárfestingu í
aiþjóðarþágu og auðvelda almenningi íbúðarbyggingar með
ódýrum og löngum lánum, — hvort afnema skuli forrétt-
indi verzlunarauðvalds til lána, — hvort þyngja skuli skatta
á braskaravaldinu, en létta á almenningi, — hvort skapa
skuli jafnrétti íslendinga til hagnýtingar prentfreísis eða
viðhalda forréttindum verzlunarauðvaldsins.
Verzlunarauðvaldið á íslandi er skaðvaldur í efnahagslífi
þjóðarinnar með verðbólguhraski sínu. Þróun sjávarútvegs
og íslenzks iðnaðar er aðalatriði í atvinnulífi landsins, en
verzlunarauðvaldið er í krafti pólitískrar yfirdrottnunar
sinnar í Sjálfstæðisflokknum hemill á þeirri þróun, hvenær
sem það fær því ráðið.