Réttur - 01.11.1965, Side 13
RETTUR
221
menn okkar hér, sem eru sem betur fer staðsettir í námunda við
mesta þéttbýli á landinu. Með þessu vinnum við tvennt: I fyrsta lagi
vinsældir meðal almennings. I öðru lagi munu Islendingar smám
saman tileinka sér amerísk viðhorf og þjóðin eignast tvö tungumál.
Með tímanum víkur þeirra tunga fyrir okkar tungu, okkar menning
verður þeirra menning, þeir verða amerískir. Þá eru þeir ekki lengur
„óstýr.ilátir bandamenn," heldur beinlinis 1/1000 hluti af okkur
sjálfum.
Til frekari áréttingar þeirri fullyrðingu, að klaufaskapur og
skammsýni íslenzkra valdhafa sé ekki eina orsök núverandi ástands
í sjónvarpsmálum, heldur séu Bandaríkjamenn beinlínis að reka
eins konar skotgrafahernað gegn íslenzkri menningu, skal bent á
eftirfarandi staðreyndir:
1. Keflavíkurstöðin er stækkuð og dagskráin lengd á sama tima og
hermönnum er fækkað og framkvæmdar víðtækar sparnaðarráð-
stafanir í herstöðvarekstri Bandaríkjanna erlendis.
2. Bandaríkjamenn segjast þurfa að endurnýja gamlan og veikan
sendi, sem sé úr sér genginn og nánast ónýtur. Sendir þessi stend-
ur ennþá í sjónvarpsstöðinni á Keflavíkurflugvelli, og er i svo
ágætu lagi, að hann er notaður þegar sá nýi bilar og kallaður
„Old Faithful“.
3. Að sögn íslenzkra valdhafa héldu Bandaríkjamenn því fram, að
veikar.i sendir en 300 vött væri ekki fáanlegur. Skv. World Radio
and TV Handbook 1961 er 300 vatta sendir algert einsdæmi í
herstöðvum Bandaríkjanna á nyrsta hluta hnattarins, heldur
starfrækja þeir á þessu svæði sjónvarpssenda, sem eru allt niður
í eitt vatt að styrkleika.
4. Fyrst þegar Bandaríkjamenn fengu leyfi til sjónvarpsreksturs á
Keflavíkurflugvelli, var það bundið því skilyrði, að sjónvarpið
næði ekki til Reykjavíkur, og var aðalorku sendisins því beint
á haf út með stefnuloftneti. Eftir að stöðin var stækkuð var þessu
algjörlega snúið við, útsendingarloftnetið hækkað og aðalorku
sendisins beint til Reykjavíkur með sérstöku stefnuloftneti. Ar-
angurinn er sá, að Reykvíkingar sjá sjónvarpsmyndina ágætlega,
en í Höfnum, örfáa kílómetra frá stöð.inni en í þveröfugri átt,
er oft erfitt að ná skýrri mynd á sjónvarpstæki. Stefnuloftnet
Jjetta mun upphaflega hafa verið sett upp undir því yfirskyni, að
varðmennirnir í Hvalfirði gætu notið sjónvarpsins. Þegar i ljós
kom, að fjöll skyggðu á, var þyrla send af stað með tæknifræð-