Réttur - 01.11.1965, Side 32
240
RÉTTUR
maSurinn, Jónas frá Hriflu, haldið tengslunum viS þá víðsýni og
visku, er þá einkenndi „Rétt,“ þá hefð.i margt orðið öðruvísi í ís-
lenzkri sögu á 20. öld. Vaxtarbroddur íslenzkrar bændastéttar stóð
á þessu ári þjóðfélagslega séð í hugsjónadýrð morgunroðans. Enn
var samvinna og samhjálp hin mikla hugsjón: úrlausn á þjóðfélags-
vandamálinu. Framundan var valdaskeiðið: — aldarfjórðungs rík-
isstjórnarþátttaka Framsóknarflokksins, stórfengleg uppbygging
fjármálabákns Sambandsins, — skipulagning þess valdakerfis, sem
drottnaði yfir íslandi um skeið. Og það reyndist þeim forystu-
mönnum, er Framsókn og samvinnuhreyfingin kaus sér á því skeiði,
jafn erfitt sem ýmsum öðrum að samræma hugsjón og völd. A því
100 ára afmæli verzlunarfrelsisins 1955, sem brautryðjendur hug-
sjónarinnar vonuðu að sæi Island sameinað um samvinnuhug-
sjónina, hafandi útrýmt arðráni og spillingu verzlunarauðvalds-
,ins, — þá stóðu Samband ísl. samvinnufélaga og Framsóknarflokk-
urinn i helmingaskipta-ríkisstjórn með Reykjavíkurauðvaldinu en
í hatramri baráttu við verkalýð landsins, til þess að reyna að við-
halda arðráni gerspillts auðvalds — og töpuðu.
Og víkjum þá stuttlega að þeim mönnum, er stofnuðu „Rétt“ og
voru í fyrstu ritnefnd hans.
ÞÓRÓLFUR SIGURÐSSON var í senn aðalútgefandi, ábyrgðar-
maður og í ritnefnd.
Þórólfur var fæddur 6. maí 1886. Foreldrar hans voru þau hjón-
in Solveig Guðrún Pétursdóttir, Jónssonar Þorsteinssonar í Reykja-
hlíð (Reykjahlíðarættin) og Sigurður Jónsson, Illugasonar Hall-
grímssonar. Það var sterk kjölfesta í þessum ættum Mývetninga,
er að honum stóðu. Þórólfur útskrifaðist úr Gagnfræðaskólanum
á Akureyri 1909 og er áður getið um nokkra skólafélaga hans þá.
I des. 1914 fór Þórólfur fótgangandi til Reykjavíkur. Hafði hann
þar mikil sambönd við ýmsa forkólfa félagslegra hreyfinga svo
sem Jónas frá Hriflu og fleiri. Hann bjó þá um skeið hjá Guðrúnu,
ekkju Þorsteins Erlingssonar og hefur þá líklega fengið ræðu Þor-
steins um „Verkamannasamtökin“ til birtingar, því Guðrún hvetur
hann í bréfi til að birta líka ýmislegt úr vasabókum Þorsteins.
Þórólfur hefur á árunum 1915 og 1916 mikil samskipti við ýmsa
þá menn, sem áttu eftir að verða íorystumenn verkalýðs- og sam-
vinnuhreyfingarinnar. M. a. er til bréf, sem Ólafur Friðriksson
skrifar honum 1915 frá Akureyri um áform sín. (Síðar vonast
Réttur til að geta birt merkileg skjöl, er þeirra fóru á milli).
Var Þórólfur þegar á þessum tíma með beztu foringjaefnum í