Réttur - 01.11.1965, Síða 36
244
RETT UR
Þórólfur er í miðstjórn Framsóknarflokksins og er raunverulegur
ritstjóri Tímans, meðan Tryggvi Þórhallsson sem ritstjórinn situr
á Alþingi.
Allt þetta dregur eðlilega krafta Þórólfs frá Rétti, er fram í sæk-
ir, og svo bætast aðrir, líka fjárhagslegir, erfiðleikar ofan á, sem
ei skulu raktir hér. En vonandi tekst bráðlega að fá r.itaða fyrir
Rétt góða frásögn af þessum merka brauðryðjanda.
Þórólfur var harðgert hraustmenni, stór í huga og stoltur í gerð.
Hann bjó að Baldursheimi til æfiloka, en hann dó 14. júní 1940.
Kona hans var Hólmfríður Hemmert og áttu þau einn son, Sigurð,
er nú býr í Kópavogi. Hefur hann góðfúslega veitt okkur aðgang
að mörgum skjölum og myndum, er hann varðveitir eftir föður sinn.
Starfið að „Rétti“ stóð og féll með Þórólfi, þótt aðr.ir legðu þar
gjörfa hönd á plóginn til að byrja með. Skal nú hinna ritnefndar-
mannanna stuttlega getið:
BENEDIKT JÓNSSON ó Auðnum var fæddur 28. jan. 1846 og
var því langelstur þeirra „Réttar“-manna, orðinn sjötugur, er
,.Réttur“ hóf göngu sína, en jafn ungur í anda og hinir. Víðsýni
hans var alla ævi slík að af bar. Á sögu hans í sambandi við Bóka-
safn Þingeyinga er þegar minnst hér. En mikið vantar enn á að
ævistarf þessa manns hafi verið metið sem skyldi. Benedikt andaðist
1. febr. 1938, 92 ára að aldri.
Benedikt á Auðnum mun líklega hafa verið mestur félagsfræði-
legur hugsuður á alþjóðavísu af þeim brautryðjendum Réttar. Þekk-
ing hans á þjóðfélagslegum vandamálum samtímans var alveg
óvenjuleg. Það var sem bókasafnið á Húsavík, sem hann hafði byggt
upp, yrði honum sú Hliðskjálf, hvaðan hann sæi um heima alla,
til þess að kryfja til mergjar þau mannfélags-vandamól, er þjóðirnar
yrðu að glíma v.ið að leysa. Og hann sá að sú lausn var að almenn-
ingur beitti úrræðum samhjálpar og samvinnu til þess að afnema
skipulag forréttindanna, er eign auðsins skapar. „Það er ekki til
neins fyrir okkur að neita því, að við erum sósialistar,“ segir Bene-
dikt i bréfi til Sigurðar í Yztafelli.*)
JÓNAS JÓNSSON frá Hriflu þarf ekki að kynna. Hann er sá
stjórnmálamaöur, er setur mestan svip sinn ó aldarfjórðungsskeið
í íslenzkri stjórnmólasögu, á árunum 1916—’41. Hann var 31 árs,
*) Tilvitnun í bók Jóns Sigurðssonar um föður sinn Sigurð í Yztafelli, sem
nú er nýkomin út og hefur mikinn fróðleik að geyma um marga þá menn, er
koma við sögu Réttar og þeirrar þjóðfélagshreyfingar, er skóp hann.