Réttur - 01.11.1965, Side 44
252
K E T T U R
orð, — heldur fyllum við þau innihaldi með því að bera fram spurn-
ingarnar: „Frelsi hvers?“ „Bræðralag hverra?“ Og svörin verða
ætíð þau að berjast fyrir frelsi allra undirokaðra, fyrir jafnrétti
og bræðralagi allra þjóða.
Einnig við sköpun og uppbyggingu hins sósíalistíska þjóðfélags
er lýðræðið snar þáttur: þátttaka almennings í því að ráða rík-
inu, stjórna þjóðfélaginu. Þegar auðvaldsöfl heimsins ráðast á h.ið
nýja sósíalistiska þjóðfélag og ríkisvaldi alþýðunnar er beitt af fullu
afli gegn þeim, þá reynist oft erfitt að varðveita það lýðræði, sem
Jjó er sósialismanum eigið. En einmitt í krafti marxismans verður að
v.inna bug á þeim misfellum, er J:>á eru gerðar.
Sósíalisminn er á þessari öld að umskapa heiminn, gerbreyta
mannfélaginu. Hið sósialistiska lýðræði, sem nú er í sköpun i stór-
um hluta heims, hefur gífurlegt aðdráttarafl fyrir allar þær þjóðir,
sem nú berjast fyrir frelsi sínu eða eru að losna úr aldagömlum
fjötrum. Reynsla hinna sósíalistisku landa hefur einnig mikla jjýð-
ingu fyrir alla þá, sem eiga eftir að feta brautina fram til sósíalisma.
Hið sósíalistiska lýðræði hefur þegar skapað algert jafnrétti karla
og kvenna, komið á alhliða tryggingum allra þjóðfélagsþegna, tryggt
vaxandi þátttöku vinnandi fólks í lausn efnahagslegra og pólitískra
vandamála og opnað leiðina til menntunar og menningar fyrir allan
fjöldann.
En enginn skyldi halda að sósíalistiskt lýðræði skapaðist af sjálfu
sér um leið og verkalýðurinn nær völdum. Menn verða að muna að
hið sósíalistiska lýðræði varð að rísa á rústum hrunins auðvalds-
skipulags, — það var fætt í frumstæðum löndum, sem ekkert lýðræð.i
höfðu þekkt. Baráttan fyrir jiví var háð við hinar erfiðustu aðstæð-
ur, jafnt út á við sem inn á við.
Erindrekar auðvaldsins reyna að telja mönnum trú um að liinar
sögulega skilorðsbundnu takmarkanir á lýðræði og ýmis fyrirbrigði
á tímum persónudýrkunarinnar séu óumbreytanlegar fylgjur sósíal-
.ismans. Því fer fjarri.
Sósíalisminn er þvert á móti með þeirri þróun, sem hann tekur,
að hreinsa sig af öllum slíkum ásökunum. Sósíalisminn verður í
hugum mannanna meir og meir að boðskap um frið meðal J)jóð-
anna, um útrýmingu efnahagslegs ójafnaðar, afnáms alls arðráns
manna á mönnum. Þróun sósíalismans táknar nú þegar að sú stund
nálgist að fátækt og eymd verði að fullu útrýmt af jörðunni í krafti
vísindalegrar þróunar framleiðsluaflanna á grunni sósíalismans.
Samkeppni hinna sósíalistisku þjóðfélaga við auðvaldsskipulagið