Réttur - 01.11.1965, Page 50
258
RKTTUR
rynnu út aíf ári liðnu, yrðu að verða umtalsverðar grunnkaups-
hækkanir.
Undirbúningur verkalýðshreyfingarinnar undir þá kauphækkun
hófst fyrir alvöru með ráðstefnu, sem Alþýðusamband íslands
boðaði til þann 26. og 27. marz sl., en til þeirrar ráðstefnu voru
mættir fulltrúar allra sérsambanda verkalýðshreyfingarinnar og
einnig frá flestum öðrum starfsgreinum og landshlutum.
Ráðstefna þessi varð sammála um allar niðurstöður og var á-
lyktun sú um kjaramál, sem ráðstefnan sendi frá sér og hér fer á
eftir, einróma samþykkt.
Álykt un ráðstefnunnar er svohljóðandi:
Ályktun róðstefnu A. S. í.
„Kjararáðstefna AlþýSusambands Islands, haldin í Reykjavík 26.—
27. marz 1965, telur, að meginviÖfangsefni verkalýðssamtakanna í
sambandi viS kjarasamninga á komandi sumri sé þaS, aS tryggja
verulega aukningu rauntekna á tímaeiningu frá því, sem veriÖ hefur,
samfara samræmingu og styttingu vinnudagsins. Er það' skoSun ráS-
stefnunnar, aS mikill árlegur vöxtur þjóöarframleiSslu, mjög batn-
andi viSskiptakjör og tækniframfarir, réttlæti fullkomlega slíkar raun-
hæfar kjarabætur og telur hún einnig, að þær séu mögulegar án verS-
bólguþróunar, enda eru aSgeröir til stöSvunar verSbólgu óhjákvæmi-
legt skilyrSi þess, aS nýir kjarasamningar í framangreinda átt nái til-
gangi sínum.
í samræmi viS þetta álit sitt, lýsir ráSstefnan yfir því, að hún telur
óhjákvæmilegt aS samningsgrundvöllur viS atvinnurekendur verSi
hyggSur á sameiginlegum kröfum verkalýSsfélaganna um:
1. Almenna kauphækkun og samræmingu kauptaxta.
2. Styttingu vinnuvikunnar í 44 klst.
3. Vandleg athugun fari fram á aukinni ákvæðisvinnu og verSi
henni komiS é, þar sem hagkvæmt telst. Jafnframt verSi tryggt,
aS aukin ákvæðisvinna leiSi ekki til óeSlilegs vinnualags á verka-
fólk, m. a. meS því aS gengiS verSi frá heildarsamningum um
framkvæmd vinnurannsókna og tryggt aS verkafólk njóti rétt-
mætrar hlutdeildar í framleiSniaiikningu.
Jafnframt verði teknar upp samningaviSræSur viS ríkisstjórnina nm
ef tirf arandi:
1. Lækkun útsvars og skatta af lágtekjum og miSlungstekjiiin þann-
ig, aS þurftartekjur sén almennt útsvars- og skattfrjálsar, skatt-
þrepum verSi fjöIgaS og skattar og útsvör innheimt jafnóSum og
tekjur falla til. Jafnframt verSi skattar og útsvör á gróSarekstur
hækkaSir og ströngu skattaeftirliti framfylgt.
2. ASgerSir til iækkunar húsnæöiskostnaSar, til aS auövelda fólki
aS eignast nýjar íbúSir á kostnaSarverSi, svo sem aukning bygg-
inga á félagslegum grundvelli, hækkun lána, lenging lánstíma og