Réttur - 01.11.1965, Blaðsíða 52
260
RÉTTUR
Ráðstefnan telur, að ef viðunanlegtir árangur næst í viðræðum við
ríkisstjórnina varðandi þau almennu hagsmunamál, sem ráðstefna ASI
lagði helzt áherzlu á og ef einnig næðist viðunandi samkomulag við
vinnuveitendur um þær breytingar á samningum, sem að framan grein-
ir (15 atriðin), væri unnt fyrir verkalýðsfélögin að sætta sig við 12—
15% beina kauphækkun.
Ráðstefnan telur, að vegna atvinnulegrar sérstöðu sé nauðsynlegt,
að verkalýðsfélögin norðanlands og austan hafi samstöðu í komandi
samningum með líkum hætti og á sl. ári, enda fari samningagerðin
fram í sem nánustu samráði og samstarfi við Verkamannasambandið
og 14 manna nefnd Aiþýðusambandsins ....“
Ráðstefnan á Akureyri gerði einnig ítarlega ályktun um atvinnu-
mál á Norðurlandi, en svo sem kunnugt er, hefur atvinnuástandið
þar verið með þeim hætti, sökum brests á sjávarafla fyrst og fremst,
að heita má, að við landauðn liggi í öllum sjávarþorpum allt frá
Horni til Langaness, verði ekki bót á ráðin.
Kröfur félaganna.
Félögin um land allt sögðu nú upp samningum hvert af öðru og
sum, t. d. Dagsbrún í Reykjavík, höfðu þegar í febrúar samþykkt
uppsögn. Um kröfugerð frekari en fram kemur í ályktun ráðstefnu
Alþýðusambandsins, og öll félög gerðu að sínum kröfum, heyrðist
lítið frá félögum annars staðar á landinu. Þegar samninganefnd
verkalýðsfélaganna á Norður- og Austurlandi mætti svo til fyrsta
fundar með atvinnurekendum upp úr miðjum maí, var ekki kunn-
ugt, að nein önnur félög hefðu fullmótað kröfur sínar eða sent
þær viðsemjendum sínum.
Deilu félaganna fyrir norðan og austan var þegar á fyrsta fundi
visað til sáttasemjara og fóru allir samningar þeirra félaga eftir
það fram hér í Reykjavík. Um líkt leyti og þeir samningar hófust,
lögðu félögin í Reykjavík og Hafnarfirði fram fyllri kröfur, og fé-
iögin í Árnessýslu um svipað leyti.
Það var sameiginleg krafa allra félaga, að vinnuvikan yrði stytt
úr 48 klst. í 44 klst., aftur yrði tekin upp reglan um að greiða 100%
álag fyrir næturr og helgidagavinnu og orlof yrði 24 dagar og 8%
af launum. Félögin á Norður- og Austurlandi og félögin í Arnes-
sýslu lögðu fram kröfu um 12% grunnkaupshækkun en félögin 1
Reykjavík og Hafnarfirði geymdu sér til síðari tíma að leggja fram
kröfu um prósenttölu kauphækkunar, aftur á móti kröfðust þau
verulegra kauphækkana eftir starfsaldri, þannig, að kaup hækkaði
eftir 1 árs, 3ja ára, 6 ára og 10 ára starf í sömu starfsgrein, 5%