Réttur - 01.11.1965, Blaðsíða 55
RÉTTUR
263
ein meginorsök þess. Að því leyti hafði Norðurlandið algera sér-
stöðu, þar sem mjög mikil eftirspurn var eftir vinnuafli nær alls
staðar annarsstaðar á landinu. Að þessu athuguðu hlýtur sú spurn-
ing að vera æði áleitin, hvað það hafi verið, sem kom forystu-
mönnum verkalýðshreyfingarinnar þar til að leggja svo mikla
áherzlu sem raun varð á, að ljúka samningum fyrstir allra félaga.
Dcilur harðna.
Forsvarsmenn Vinnuveitendasambandsins töldu sig með Norður-
landssamningnum hafa leyst samningamál almennu verkalýðsfélag-
anna, og lýsti Björgvin Sigurðsson, framkvæmdastjóri þess yfir
eftirfarandi í Morgunblaðinu 9. júní, er blaðið spurði um álit hans
á samningnum:
„Eg tel, að' með þessunt samningum .... sé slegið föstum í stórum
dráttum breytingum á öðrmn kjarasamningum, sem fyrir dyrum standa."
Reynslan átti eftir að verða allt önnur, en Vinnuveitendasam-
bandið hófst þegar handa um að framkvæma þetta sitt ætlunarverk.
Við félögin í Reykjavík og Hafnarfirði, sem höfðu nána samvinnu
bæði hvað snerti viðræður við atvinnurekendur og allar aðgerðir
til að knýja fram samninga, var ekki rælt alvarlega svo vikum skipti.
Engin efnisatr.iði aðalkrafna þessara félaga — 44 stunda vinnuvika,
starfsaldurshækkanir, auknar greiðslur i veikindum — fengusl
rædd.
Hálfum mánuði eftir að Norðurlandssamningurinn var gerður,
mánudaginn 21. júní, hljóp af stokkunum nýr þáttur í útvarpinu
undir stjórn Indriða G. Þorsteinssonar rithöfundar, er nefndist
„Skiptar skoðanir". Fyrsta spurn.ingin var um það, hvað bæri á
milli í samningunum. Annar þeirra er fyrir svörum varð af hálfu
verkalýðsfélaganna var varaformaður Dagsbrúnar og formaður
samninganefndar verkalýðsfélaganna í Reykjavík og Hafnarfirði,
Guðmundur J. Guðmundsson. Hann sagði þá m. a.:
„Vinnubrögð atvinnurekenda liafa verið þau, að þeir liafa ekki rætt
efnislega við þessi verkalýðsfélög (félögin í Reykjavík og Hafnar-
firði — ÞD), heldur hófu viðræður og gerðu samninga við verkalýðs-
félögin fyrir norðan og þegar því var lokið var sagt: Gerið þið svo
vel, um þetta viljum við semja.
Ég vil segja á móti: Um þetta verður ekki samið og þetta eru eng
in vinnuhrögð í samningum."