Réttur - 01.11.1965, Síða 57
RÉTTUR
265
Atvinnurekendum var að visu ljóst, að Dagsbrún yrði naumast
þröngvað til að ganga að Norðurlandssamningnum, en þeir gerðu
sér án minnsta efa vonir um, að það tækist að sundra samstöðu
félaganna í Reykjavík og Hafnarf.irði og einangra Dagsbrún. En
þær vonir allar urðu sér rækilega til skammar. Samstaða þessara
félaga var með miklum ágætum alla samningana til enda og má á
ýmsan hátt verða til fyrirmyndar.
Það tók atvinnurekendur nokkrar vikur að átta sig á því að
Norðurlandssamningnum yrði ekki þröngvað upp á verkalýðsfélög-
in á Suðvesturlandi. Meira að segja tilraunir til þess að fá veikari
félög til að semja urðu flestar til þess eins að þjappa félögunum
fastar saman, svo sem tilraunir þær sem gerðar voru til samninga
í Árnessýslu, sem báru þann árangur, að Árnessýslufélögin bundust
fastari samtökum við félögin í Reykjavík og Hafnarfirði.
Á Akranesi var aftur á móti gerður samningur og kom nú í Ijós
að Vinnuveitendasambandið hafði liörfað á nýjar vígstöðvar. 45
stunda vinnuvikan og 4% kauphækkun var að vísu óbreytt úr
Norðurlandssamningnum, en nú var samið um 5% kauphækkun
eftir 2 ára starf hjá sama atvinnurekanda, óbreytt — eða því sem
næst — álag (91%) á nætur- og helgidagavinnu og 14 daga leng-
ingu á greiðsluskyldu atvinnurekenda í veikindatilfellum, þó með
allmiklu meir.i takmörkunum en lögin um réttindi tíma- og viku-
kaupsmanna gera ráð fyrir.
Tilraunir til þess að einangra félögin í Reykjavík og Hafnarfirði
og sundra samstöðu þeirra báru sem sagt næsta lítinn árangur, hins
vegar fóru óðum að segja til sin afleiðingar verkfallsaðgerða þess-
ara félaga.
Ný vopn í baráttunni.
Sú liefur verið allt að því föst venja verkalýðsfélaganna hérlendis,
að þegar knýja hefur þurft fram samninga, hefur ver.ið gripið til
allsherjarverkfalls viðkomandi félags eða félaga. Síðastur manna
skal höfundur þessara lína gera lítið úr þeirri aðferð, til þess hefur
árangur ýmissa þeirra verkfalla, sem háð hafa verið, verið of mikill.
Verkalýðshreyfingunni er hinsvegar mikil nauðsyn að beita ekki
ætíð sömu baráttuaðferðum, hún þarf að hafa yfir að ráða miklum
sveigjanleik og hæfileika til að taka upp og beita nýjum vopnum.
I stað þess að boða til allsherjarverkfalls, svo sem ætíð hafði
áður tíðkast, boðaði Dagsbrún yfirvinnubann frá og með 19. júní
og Hlíf frá og með 24. júní. Samhliða yfirvinnubanninu voru 6vo