Réttur - 01.11.1965, Page 67
EINAR OLGEIRSSON :
William Gallacher
— Minningarorð —
William Gallacher, einn af beztu baráttumönnum brezks verka-
lýðs og lengi formaður brezka Kommúnistaflokksins, andaðist þ.
12. ágúst 1965, 83 ára að aldri. Með honum er fallin í valinn ein
af hetjum brezkrar verklýðshreyfingar eftir langt og vel unnið ævi-
starf.
Gallacher var fæddur í Paisley i Skotlandi 25. desember 1881.
Foreldrar hans voru verkafólk og sjálfur byrjaði hann að vinna 10
ára að aidri. Faðir hans var írskur og dó, er Gallacher var 7 ára
gamall. Hann kynntist því snemma af eigin raun kjörum verkalýðs-
ins, fór að vinna í verksmiðjum og við höfnina, og varð snemma
einn af forystumönnum verkamanna í baráttu þeirra. Hann varð
snemma sósíalisti og er heimsstríðið fyrra hófst 1914, var hann
gegn því og þegar byltingin varð i Rússlandi 1917 stóð hann með
henni.
William Gallacher hefur skrifað ævisögu sína, sem seg.ir gerla
frá hinni hörðu baráttu verkalýðsins í Skotlandi á þessum árum.
Fyrir þátttöku í þeirri baráttu, var hann tvívegis dæmdur í dýflissu
og sat þar alls hálft annað ár. Ævisaga hans heitir „Revolt on the
Clyde“ („Uppreisn við CIyde-ána.“)
♦--------------------------------------------------------------
Síðasti fundur okkar Gallachers: Honn er onnar fró vinstri og kona hans
lengst til hægri. Moðurinn milli þeirra er Samucl Marsjok, hinn frægi
rússneski rithöfundur og þýðondi, er m. o. þýddi sonnettur Shakespeorcs
og Ijóð Burns ó rússnesku of mikilli snilld. Honn er lótinn fyrir nokkru.