Réttur - 01.11.1965, Síða 71
RÉTTUR
279
þvingunum, hótunum um að hætta efnahagsaðstoð og afskiptum af
innanríkismálum. Kynt er undir innbyrðis deilum og grafið undan
þjóðlegri einingu.
Einn meginþátturinn i ráðagerðum heimsvaldasinna til að endur-
heimta yfirráð sín í Irak er að vekja upp að nýju stríð.ið gegn Kúrd-
um, í þeirri von, að deilur Araha og Kúrda grafi undan samstöðu
Araharíkjanna og veiki þau í haráttu þeirra gegn heimsvaldastefn-
unni.
Lýðræðisöfl í Irak, í arabiskum Austurlöndum og um allan heim
fögnuðu vopnahléssamningnum sem gerður var 10. fehrúar s.l. ár
milli ríkisstjórnar íraks og Kúrda. Eðlilegt hefði verið að gera strax
á eftir ráðstafanir til að fjarlægja orsakirnar að deilunum sem knúið
höfðu Kúrda til að grípa til vopna, viðurkenna a. m. k. þjóðleg rétt-
indi þeirra og tryggja þeim réttláta stöðu í ríkinu. M. ö. o. leysa
deilurnar á grundvelli jafnréttis og gagnkvæmrar virðingar með
heildarhagsmuni þjóðarinnar fyrir augum, jafnt Araba sem Kúrda.
En þrátt fyrir marggefin loforð ríkisstjórnarinnar um þjóðernis-
leg réttindi Kúrda hefur hún enn ekkert aðhafzt í þá átt. Flest atriði
vopnahléssamningsins hafa ekki verið virt. Sum.ir ráðherranna halda
því jafnvel fram að Kúrdar séu ekki sérstök þjóð og því ekkert
vandamál. Stjórnarherinn hefur ekki verið látinn hörfa til upphaf-
legra stöðva sinna. Stjórnin heldur áfram að skipuleggja ólöglegar
lögreglusveitir nokkurra afturhaldssamra ættarhöfðingja Kúrda sem
beint er gegn þjóðfrelsishreyf.ingu þeirra. Hún hefur í engu að-
stoðað þúsundir flóttamanna Kúrda til að snúa aftur til fyrri heim-
kynna sinna í Kirkúk héraði, sem þeir þurftu að yfirgefa i stjórnar-
tíð Baathista. Með samþykki Baathista stjórnarinnar höfðu lönd
þeirra verið fengin í hendur ættarhöfð.ingjum sem voru i nánum
tengslum við írak olíufélagið,*1) og það er margt sem bendir til
þess að núverandi ríkisstjórn hafi heitið þessu olíufélagi heims-
valdasinna að halda áfram fjöldaflutningi Kúrda frá hinum olíuríku
svæðum í Kirkúk.
Bráðabirgðastjórnarskrá hins nýja lýðveldis hefur engin ákvæði
um þjóðlegt sjálfstæði eða réttindi Kúrda. Þá liafa Kúrdar verið
*) lraq Petroleum Company hefur beinna og óbeinna hagsmuna að gæta í
flestum Miðausturlöndum, svo sem Kýpur, ísrael, írak, Jordaníu, Lebanon,
Muscat og Oman, Trucial, Quatar, Sýrlandi. Yfirráðin í félaginu eru í Jiessara
höndum: British Petroleum, Shell, Francaise des Pétrols, livert um sig 23,75%.
Standard Oil og Socony Mobil Oil, livort 11,875%. Gulbenkian 5%. (ÞýS.)