Réttur - 01.11.1965, Síða 73
RÉTT UR
281
Aröbum og Kúrdum. Þau v.ilja koma af stað styrjöld á ný, þótt það
sé hvorki í þágu Araba né Kúrda í írak. Það eru aðeins erlend öfl
sem munu hagnast á nýjum hernaðarátökum og vér megum ekki
loka augunum fyrir því, að þeir geta reynt að nota oss sem verkfæri
í sínum ráðagerðum. Vér lýsum því yfir að vér munum ekki að
fyrra bragði hefja hernaðaraðgerðir, hverju sem fram vindur. Vér
erum gegn ögrunum, hver sem á í hlut. Ef á oss verður ráðizt og vér
neyddir til að verja oss, börn vor, fjölskyldur og land vort, þá mun-
um vér setja traust vort á guð og þjóð vora.“
Jafnframt því sem Kúrdar hvetja til friðsamlegra samninga leggja
þeir enn sem fyrr áherzlu á þegnskap við þjóðlega og stjórnarfars-
lega einingu íraks og óskir sínar um að vera áfram hluti lýðveldis-
ins. Þeir telja að viðurkenning á þjóðlegum sjálfstjórnarréttindum
þeirra rnuni styrkja þjóðlega einingu og treysta vináttubönd Araba
og Kúrda í írak. Það getur aftur á móti aðeins skaðað írak að
meina þeim lögmætan rétt og skapað jarðveg fyrir undirróður
heimsvaldasinna í Kúrdistan. Kúrdar álíta að lýðræðisstjórnarfar
um allt Irak muni stuðla að rétllátri og lýðræðislegri lausn vanda-
mála. I bréfum sínum og ávörpum skora þeir á ríkisstjórnina að
veita frelsi öllum pólitískum föngum og aflétta herlögum. Ríkis-
sljórnin hefur svarað því til að Kúrdar hafi engan rétt á að bera
fram slíkar kröfur, þar sé stjórnarinnar einnar að ákveða.
Hernaðaraðgerðir gegn Kúrdum geta aðeins þjónað markmiði
heimsvaldasinna, hamlað gegn einingu þjóðarinnar og sókn Araba-
þjóðanna gegn heimsvaldastefnu og fyrir framförum. Borgarastyrj-
öld í írak yrði kærkomið tækifær.i heimsveldunum til að blanda sér
opinskátt í innri málefni Iraks og koma landinu aftur undir þeirra
yfirstjórn. Þess vegna er aðkallandi samstarf og eining allra bylt-
ingarsinnaðra föðurlandsvina — jafnt í Kúrdistan sem annars
staðar í írak — til að gera að engu þessar vonir heimsvaldasinna
og afturhaldsafla, fyrirbyggja blóðsúthellingar, vinna að viður-
kenningu á þjóðlegum rétti Kúrda og tryggja framfarir í írak.
Kúrdar beina því til allra sem vilja frelsi og húmanisma, virða
rétt manna og þjóða, að hindra nýtt stríð gegn Kúrdum, fyrirbyggja
íhlutun heimsveldanna í Irak, stuðla að viðurkenningu á þjóðlegum
rétti og að lýðræði sé í heiðri haft.
Frelsisbarálta Kúrda nýtur viðurkenningar allra framfarasinn-
aðra lýðræðisafla í heiminum, og vér erum sannfærðir um að mál-
efnalegur og siðferðilegur stuðningur við hana fer vaxandi, því hún
er bæði réttlát og húmanisk. (Lausl. þýtt).