Réttur - 01.11.1965, Side 83
291
RÉTTUR
fm.
\
skapar méiri verðmæti og framleiðsla hans eykst að magni.“ Það
er ekki sá sem skápar verðmætin, hinn vinnandi maður, sem tileink-
ar sér afurðir vinnu sinnar, heldur eigandi framleiðslutækjanna.
Að því leyti er einkaeignin ein höfuðorsök firringarinnar eða fremd-
arkenndarinnar er hinn vinnandi maður finnur til gagnvart hlutun-
um sem umkringja hann. Hann leggur líf sitt og orku í hluti sem
hann er sviptur jafnharðan af völdum einkaeignarinnar. Þar með
er hann „firrtur“ Iífi sínu á sama hátt og guðsdýrkandinn sem eignar
guðinum afl og eiginleika er búa með honum sjálfum. Af þessu
leiðir að lif verkamannsins verður þeim mun tilgangslausara sem
hann vinnur meira og framleiðir meira. Vinna hans verður að
ópersónulegum hlut og öðlast sjálfstætt líf sem er honum framandi.
„Lífið sem hann leggur í hlutinn birtist honum að lokum sem fjand-
samlegt og framandi afl.“
Jafnframt fjarlægðist maðurinn náttúruna, hinn ytra skyn'heim
setn ljær honum efni til vinnunnar. í augum hans verður hinn óend-
anlega auðugi heimur aðeins tœki, nauðsynlegur miðill til þess að
hann geti unnið og framfleytt sér. Samlifunin milli manns og náttúru
er að miklu leyti rofin. Firring vinnunnar í kapitalísku þjóðfélagi
færist þannig einnig yfir á náttúruna.
Sé litið á starfið sjálft kemúr í ljós að þar fjarlægist maðurinn
einnig sjálfan sig og umhverfið. í stað þess að finna sínum mann-
legu eiginleikum og frelsi útrás í félagslegri vinnu, skoðar nútíma-
maðurinn hana einungis sem tæki til að fullnægja líkamsþörfum
sínum. Það sem ætti að vera sjálfkrafa tjáning er orðið að meðali
einu saman sem helgast af hinum líkamlegu, dýrslegu þörfum manns-
ins. Framleiðsla dýranna er takmörkuð og svarar aðeins til stundar-
þarfa þeirra og nauðþurfta, en „maðurinn framleiðir jafnvel þegar
hann er óháður líkamlegumþörfum sínum, og raunverulega eruvinna
hans og sköpunarverk því aðeins frjáls að hann sé óháður slíkum
þörfum.“ Framleiðsla mannsins höfðar til allrar tegundarinnar, hún
er almannleg (universal) og lýtur sínum eigin reglum, t. d. fegurðar-
reglum. Því er það að maðurinn getur ekki fullnægt tegundareðli
sínu nema í frjálsu starfi. Vinna sem er nauðung og aðeins meðal
til að svala efnalegum þörfum hefur glatað öllu sjálfstjáningargildi
fyrir manninn. í stað þess að tengja þá saman sundrar hún þeim
og gerir þá að tilfinningalausum hlutum. í hinu vélvædda einka-
fyrirtæki nútímans eru engin lífræn tengsl milli verkamannanna,
allir eru bundnir á sinn bás og fá skipanir ofan frá, frá stjórnend-
um fyrirtækisins, sem reyna frekar að vekja sundurlyndi meðal