Réttur - 01.11.1965, Page 91
RÉTTUR
299
friðsamlega mótmælagöngu. Vegna þeirrar árásar særðust fjöl-
margir og einn háskólastúdent var drepinn. Larrazabal, vara-
aðmíráll, sem áður var forseti lýðveldisins um stundarsakir, var
einn þeirra, sem særðust. „Eg álít að ríkisstjórnin sé ábyrg fyrir
þessum blóðsúthellingum,“ sagði Larrazabal, „og ég spyr hvort hún
hyggst stjórna með lýðræðislegum aðferðunj, eða hvort hún óskar
þess að þjóðin og andstöðuflokkarnir svari árásunum í sömu mynt.“
Fjöldagöngur voru farnar í borgunum í mótmælaskyni við þessa
árás. Þá skipuðu valdhafarnir svo fyrir með Iagaboði, að heimilt
væri að hneppa alla andstæðinga ríkisstjórnarinnar og þátttakendur
í mótmælaaðgerðum í 90 daga fangelsi. Jafnframt voru stofnanir
og málgögn þeirra bönnuð og margir leiðtoganna settir í fangelsi.
*
1— Þannig er stjórnarfarið í Veneznela í dag og því er lýst á raunsæjan hátt
í bók Cabieses Donosos. Valdhafarnir eru þægir þjónar bandarísku auðhring-
anna, sem hafa sölsað undir sig hinar gffurlegu auðlindir landsins — en
íbúarnir, sem landið byggja, fá ekki að njóta frumstæðustu mannréttinda,
aðeins að horfa á verðmætin, sem þeir hafa skapað, hverfa úr landi í hirzlur
auðkónganna handarísku.]