Réttur - 01.11.1965, Blaðsíða 93
R É T T U R
301
fleiri félagar voru myrtir á hryðjuverkatímanum eftir 8. febr. 1963,
átti hann mikinn þátt í að skipuleggja neðanjarðarstarfsemi flokks-
ins og halda nafni hans á lofti.
Hollusta Al-Haidari og félaga hans er tákn um þá staðfestu, sem
einkennt hefur Kommúnistaflokk Iraks síðan hann var stofnaður
1934. Hið ókúgandi afl sitt á flokkurinn verkafólki og mönnum eins
og Al-Haidari að þakka.
Trúr samstarfsmaður og félagi Al-Haidari allt til dauða var
Mohammed Saleh Abali.
Sjálfur fæddur og uppalinn í fátækrahverfi Bagdað, var hann
alla tíð í nánum tengslum við verkalýðsstéttina. Seinna sýndi hann
sérstaka hæfileika sína við störf í neðanjarðarhreyfingunni, einkum
í að skipuleggja leynilega blaðaútgáfu flokksins. 1956 var hann
kosinn í miðstjórn flokksins og 1960 var hann ásamt Al-Haidari á
ráðstefnunni í Moskvu.
Abdul Jabbar Wahbi eða Abu Said eins og hann var kallaður,
var eðlisfræðikennari að menntun. Af nemendum sínum var hann
þekktur sem lýðræðissinni, mannvinur og fagurkeri.
Hann varð óþreytandi starfsmaður í neðanjarðarhreyfingunni
og vann ómetanlegt starf meðal æsku- og menntamanna. Eftir júlí
1958 þegar dagblað flokksins Ittihad al Shaab byrjaði að koma út
á löglegan hátt varð hann einn af ritstjórum þess. Abu Said átti
engan sinn líka í ritsnilli meðal Araba á okkar tíma. Einkum var
hann frægur fyrir pólitískar ádeilugreinar og sveið óvinunum sárt
undan penna hans. Hann helgaði hinn hvassa penna sinn algerlega
málstað verkalýðsins og flokksins.
Al-Haidari, Abali og Abu Said féllu trúir verkalýðnum og þjóð
sinni. Þeir dóu sem hetjur og fórnarlömb eins og hundruð annarra
kommúnista íraks. Það er ekki tilviljun að fólkið kallar Kommún-
istaflokk íraks flokk fórna og hugprýði.
Valdhafarnir í írak, einræðisklíka Arefs, hefur ekkert lært af
sögunni. Þeir halda áfram blóðugri ógnarstjórn sinni. Þeir loka
augunum fyr.ir örlögum fyrirrennara sinna. En ógnarstjórn þeirra
getur ekki hrætt fólkið né brotið á bak aftur Kommúnistaflokkinn
og önnur lýðræðisleg öfl. Þeir aðeins einangra sjálfa sig og flýta
fyrir falli sínu.
Líf kommúnistisku píslarvottanna er fólkinu fyrirmynd í barátt-
unni fyrir lýðræði og fyrir frelsi íraks. Endurminningin um þá og
fórn þeirra lýsir alþýðunni leiðina til sigurs.
>,ni; (S. E. þýddi lauslega).