Réttur - 01.11.1965, Page 102
R. FALKE :
Hann lielgaði líf sitt alþýðunni
„Hann íölnaði og ég tók eftir hvernig reiði og fyrirlitning krauzt
út innra með honum. Gangan hafði beygt inn í Kartnersstrasse þegar
sprengingin varð. Nazistarnir höfðu kastað ólyktarsprengju. Mað-
urinn sem gekk við hlið mér endurtók í sífellu: „Það sama upp aftur
og aftur, svona byrjaði þetta.“ Þegar við gengum framhjá hópnum
sem kastaði sprengjunni klappaði hann á öxl mér og sagði: „Sérðu
þá, heyrirðu hvað þeir öskra!“ Engin lögregla sást nálæg. Allt í
einu réðust foringjarnir úr nazistahópnum að okkur og hinir komu
á eftir. Einn náunginn, meðalmaður á hæð, hélt á einhverju í hend-
inni. Það skipti engum togum að hann sló manninn sem gekk v.ið
hlið mér og eftir augnablik féli gamli maðurinn blóði drifinn á
götuna.“
Þannig farast sjónarvotti orð um dauða félaga Ernst Kirchwegers,
aldraðs baráttumanns úr andspyrnuhreyfingunni og félaga í Komm-
únistaflokki Austurríkis. Þessi hörmulegi atburður gerðist í Vín.
Ekki á þriðja tug aldarinnar þegar brúnstakkarnir voru í uppsigl-
ingu, heldur nú fyrir skömmu eða 31. marz 1965.
Þetta fyrsta pólitíska morð í Austurríki eftir heimsstyrjöldina
sýnir og sannar að fasisminn hefur ekki verið upprættur með öllu.
„Tuttugu árum eftir að Austurríki var frelsað undan ógnarstjórn
nazista læðist aftur hinn brúni skuggi yfir landið,“ segir blað.ið
Neues Osterreich. „Þessir skuggar hafa safnazt fyrir í skólum og
æðri menntastofnunum, náð tökum á skoðanamyndun vissra hópa
og eru að umlykja réttarfarið ... “
Götur höfuðborgarinnar urðu vettvangur tveggja afla, mörg þús-
und hópgöngumanna andfasista annars vegar og hins vegar nokkur
hundruð fasista. Lýðræðissinnaðir stúdentar og önnur æskulýðs-
samtök, kaþólskir og baráttumenn úr andspyrnuhreyfingunni gengu
undir kjörorðinu: „Austurrískir stúdentar mótmæla kynþáttahatri