Réttur


Réttur - 01.01.1966, Síða 35

Réttur - 01.01.1966, Síða 35
RETTUR 35 miðað við einfalda 'rennslisvirkjun eins og bandaríska verkfræði- fyrirtækið gerði upphaflega tillögur um. En það eru fleiri atriði sem ekki eru reiknuð inn í virkjunar- kostnaðinn. Eins og kunnugt er, er áformað að koma upp vara- stöðvum til öryggis, ef truflanir verða við Búrfell, og eru slíkar stöðvar m. a. skilyrði frá alúmínhringnum, því bræðslan verður að fá örugga lágmarksorku svo aldrei storkni í pottunum. Þær stöðvar sem um er rætt eiga að kosta 160—180 milljónir króna, en sá stofn- kostnaður er ekki reiknaður inn í heildaráætlunina, heldur er Islend- ingum einum ætlað að bera hann. Er þessi óeðlilegi háttur á hafður til þess að hægt sé að reikna út kostnaðarverð á pappírnum sem jafngildir hugmyndum hringsins. Þá er augljóst mál að kostnaðartölur þær sem reiknað er með í áætlununum fá engan veginn staðizt vegna verðbólguþróunarinnar á íslandi. Aætlanirnar eru frá því í febrúarmánuði 1964, en fram- kvæmdum á ekki að verða lokið fyrr en fimm árum síðar en bygg- ingarkostnaður var reiknaður út. Síðustu fimm ár hefur byggingar- kostnaður hækkað um a.m.k. 10% á ári, og sízt mun draga úr þeirri verðbólguþróun ef ráðast á í stórframkvæmdir þær sem nú er rætt um. Því munu jafnvel þær heildarkostnaðartölur sem reiknað hefur verið með ekki fá staðizt, heldur hækka mjög verulega, vafalaust um eitt til tvö hundruð milljónir króna. Ég vil nefna enn eitt atriði af hliðstæðu tagi. Hvarvetna þar sem alúmínbræðslur bafa verið reistar í nágrenni okkar að undanförnu hefur verið talið sjálfsagt að búa þær hreinsunartækjum til þess að koma í veg fyrir flúoreitrun á jarðvegi og gróðri í nágrenninu. En svissneski hringurinn tilkynnti íslenzku samninganefndinni að slíkur hreinsunarútbúnaður yrði þá að vera á kostnað íslendinga og birtast í lægra raforkuverði, en hreinsunarútbúnaður er talinn kosta yfir 100 milljónir króna. Til þess að losna við þetta vandamál er um það rætt að alúmínbræðslan verði án hreinsunartækja í námunda við þéttbýlustu svæði á Islandi þar sem m. a. er stunduð matvæla- framleiðsla til útflutnings. Fæ ég með engu móti skilið að þar sé um raunsæjar áætlanir að ræða. Allt er þetta til marks um vonlausa baráttu stjórnarvaldanna til þess að reyna að sanna það á pappírnum að verð það sem alúmín- hringurinn býður — 10,75 aurar á kílóvattstund — sé í samræmi við raunverulegt kostnaðarverð. Þær tilraunir hafa mistekizt fyrir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.