Réttur - 01.01.1966, Qupperneq 47
HYM AN LUMER:
Fátækt í allsnægtaþjóðfélagi
[1 10. hefti tímaritsins „Vandamál friðar og sósíalisma" 1965 er greina-
flokknr um Bandaríkin í dag. Greinarnar eru ritaðar af bandarískum kommún-
istum og fjallar sú fyrsta um heimsvaldastefnuna og baráttuna gegn henni í
Bandarikjunum, þá er grein um jafnréttisbaráttu hlökkumanna og í greininni
Fátækt í „allsnægtaþjóðfélagi" eru dregnar fram hinar skýru andstæður hins
bandaríska auðvaldsþjóðfélags og hin djúpstæða fátækt milljóna sérstaklega
tekin til meðferðar. Þessi grein er lauslega þýdd og endursögð liér á eftir,
en höfundur hennar heitir Hyman Lumer.]
Að uppgötva fótækt.
1936 minntist Franklin D. Roosevelt á þann „þriðjung bandarísku
þjóðarinnar, sem byggi í slæmum húsakynnum, .illa skæddur og van-
nærður.“ Þetta var mitt í þeirri mestu eymd, sem bandaríska þjóðin
hefur lifað, algjör andstæða við það góðæri, sem verið hafði næst-
liðin ár. En Johnson forseti neyddist til að taka eftir fátæktinni í
Bandaríkjunum, er hann sagði í ræðu 1964: „Ríkisstjórn okkar lýsir
yfir skilyröislausu stríði gegn fátæktinni í Bandaríkjunum, og ég
skora á þingið og þjóð.ina að standa meö okkur í þeirra baráttu."
— En hvernig stendur á því að slik yfirlýsing er látin út ganga eftir
tiltölulega hagstætt tímabil í efnahagsmálum Bandaríkjanna? Svars-
ins þarf ekki lengi að leita.
Fyrst skal það nefnt að atvinnuleysi hefur aukizt verulega í Banda-
ríkjunum hin síðari ár, eftir að Kóreustríðinu lauk. Skv. opinberum
skýrslum voru 2,7% atvinnulausra í Bandaríkjunum í júlí 1953,
4,7% í júlí 1957, 5,1% í maí 1960 og voru þessir mánuSir þó há-
punJctar „góðœris“. En 1963 var hlutfallstalan komin í 5,7%,
en lœkkaði síðan aftur í 5,2% 1964. Og það er ekki fyrr en
1965 að meðaltalið af atvinnulausum yjir öll Bandaríkin jer undir
jimm af hundraði eða í 4,8%.
En sagan er ekki öll sögð með þessum tölum. Þeir eru taldir hafa