Réttur - 01.01.1966, Síða 63
R E T T U R
63
glórulaust afturhald beitti ofbeldi og brottflutningi forystumanna
til þess að reyna að koma í veg fyrir að verklýðssamtök gætu starfað
(Bolungavík, Keflavík 1932).
A stjórnmálasviðinu var þetta tími hinnar vægðarlausu gagnrýni
á því auðvaldsskipulagi, er olli kreppunni, atvinnuleys.inu og öllum
hörmungunum. Við alþingiskosningarnar 1934 fengu verklýðsflokk-
arnir til samans 27,7% atkvæða. Kommúnistaflokkurinn fékk þá
6,0% greiddra atkvæða.*) Alþýðuflokkurinn vann 1934 glæsileg-
asta kosningasigur, sem bann hefur nokkru sinni unnið, á mjög rót-
tækri stefnuskrá um áætlunarbúskap með hagsmuni almennings
fyrir augum („4 ára áætlunin“) og fékk 21,7% allra greiddra.^t-
kvæða. (Var jafnsterkur Framsókn, er fékk 21,9%). En Fram-
sóknarflokkurinn eyðilagði í framkvæmd stjórnarsamvinnunnar all-
ar slíkar róttækar tillögur Alþýðuflokksins og sprengdi svo stjórnina
á gerðardómslögum gegn sjómönnum.
Á árunum 1939—42 harðnaði enn á ný stéttabaráttan. „Þjóð-
stjórnin“ var einhver afturhaldssamasta stjórn, sem að völdum hefur
setið á íslandi og beitti óspart kúgunarlögum. Þegar brezki innrásar-
herinn gekk til liðs við atvinnurekendur í kaupdeilunni í árgbyrjun
1941, kom til fangelsana á forvígismönnum verkamanna ;(dreifi-
bréfsmálið) og svívirðilegir stéttadómar voru dæmdir (fangelsi
6—18 mánuði), en þegar þjóðstjórnin greip til gerðardómslaganna
illræmdu í janúar 1942, sprakk hún sjálf, er Alþýðuflokkurinn fór
út, og skæruhernaðurinn hófst undir forystu Sósíalistaflokksins og
endaði með sögulegum stórsigri verklýðssamtakanna, sem markar
tímamót í Islandssögunni. (Þá fékkst 8 tíma vinnudagur, kauphækk-
un um 40%, 50% álag á eftirvinnu, 100% á næturvinnu, full dýr-
tíðaruppbót sjálfkrafa á allt kaup og orlofslög sett). Ög'þessum sigri
var síðan fylgt eftir með því tæknilega og þj óSfélagslega nýsköp-,
unarstarfi, er ríkisstjórnin 1944—47 vann, en að henni stóðu báðii'
verklýðsflokkarnir ásamt meirihluta þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins. Það varð bylting í iífskjörum alþýðu, en ekki í völdum.
Með sigrinum 1942 vann islenzk verklýðshrcyfing úrslitasigurinn í bar-
*) Kommúnistaflokkurinn átti j)á í miklum innri erfiðleikum. Hafði fengið
7,5% við þingkosningar 1933. Til samanburðar má geta þess að atkvœðahlutfall
Socialistisk Folkeparti í Noregi og Danmörku var við síðustu þingkosningar
í þeim löndum 6%. t