Réttur - 01.01.1966, Side 92
92
RÉTTUR
Sveins Skorra er því enn sem komiíT
er eina bókin þar sem fá má upplýs-
ingar um allt, sem Gestur Pálsson rit-
aði, — fyrir utan allt annað, sem
þessi merkilega bók hefur að geyma.
Hafi Sveinn Skorri Höskuldsson
þökk fyrir verk sitt.
E. O.
IVorld Marxist Review 1965.
9. hefti. — Prag.
í þetta 9. hefti tímaritsins rita m.
a. þessir:
Sonomyn Luwsan, meðlimur í fram-
kvæmdanefnd byltingarflokksins í
Mongoliu, ritar grein um sigurinn
yfir japönsku hernaðarsinnunum og
alþjóðalega þýðingu hans.
Albert Norden, einn af helztu for-
ingjum Sósíalistaflokkksins í þýzka
alþýðulýðveldinu, ritar mjög eftir-
tektarverða grein um „stríðsundir-
búning þýzku stórveldisstefnunnar.“
Rekur hann þar landvinningafyrirætl-
anir þýzku auðmannastéttarinnar,
sýnir fram á hvernig hinir fyrri her-
foringjar Hitlers liafa tekið algerlega
forystu í liinum nýþýzka her og þar
með í Atlantshafsbandalaginu. Rekur
hann síðan allan stríðsundirbúning
þeirra og hvernig þeir halla sér nú
að Bandaríkjunum f von um að geta
komið stríði af stað í Evrópu og
dregið Bandaríkin með sér í það.
Professor Karl-Henz Domdey, vís-
indamaður í hagfræði í þýzka alþýðu-
lýðveldinu (DDR), ritar grein uin
efnahagsleg samskipti sósíalistiskra
landa og auðvaldslanda í Evrópu.
I>á koma nokkrar greinar sérfræð-
inga um áætlnnarbúskap í DDR og
reynslu á ýmisskonar stjórnmálastarfi
í Tékkóslóvakíu.
Victor Perlo, bandaríski hagfræð-
ingurinn, ritar grein um Bandaríkja-
stjórn og hringrásina í efnahagslíf-
inu.
Þá kemur grein um landbúnaðinn
í þróunarlöndum Asíu.
A. Ardekani, einn af forystumönn-
um Tudehflokksins í Iran, ritar um
aðferðir til að koma á samfylkingu
um þjóðfrelsi og lýðræði í Iran.
Lars Juntila, meðlimur í fram-
kvæmdanefnd finnska Kommúnista-
flokksins, ritar um reynsluna í Finn-
landi við að sigrast á klofningunni
í verkalýðssamtökunum.
Antti J'ántti, finnskur blaðamaður,
ritar um samstarfið í finnsku sam-
vinnuhreyíingunni.
Gunnar Öhman, sænskur blaðamað-
ur, og A. Lewkowski, sovéskur blaða-
maður, rita um „bandamenn verka-
lýðsins,*' einkum um starfsmanna-
stéttina og millistéttina.
Vasco Moura gerir grein fyrir bar-
áttu Kommúnistaflokksins i Portugal
fyrir lýðræðisbyltingu gegn harð-
stjórninni þar í landi og hvernig sú
barátta tengist frelsisbaráttu hinna
undirokuðu nýlenduþjóða i hinu
hrynjandi heimsveldi Portugals.
J. B. Tavares Sá ritar um nauðsyn
þess að fella einræðisstjórnina í
Brazilíu og sé það næsti áfanginn í
baráttu Kommúnistaflokks Braziliu.
Ramzi ritar um þann sigur, er al-
þýðan í Jordaníu vann, er lög voru
sett þar í landi um uppgjöf pólitískra
saka þeirra byltingarmanna, er sátu
í fungelsum eða voru í útlegð. Hafði
Kommúnistaflokkur Jordaníu lengi
barist fyrir slíkri sakaruppgjöf.