Réttur - 01.10.1931, Blaðsíða 37
Rjettur]
5-ÁRA ÁÆTLUNIN
229
það hefði heldur ekki verið hægt, ef hið nýja sósíalist-
iska líf alþýðunnar, samvinnan fyrir sinn eigin hag,
hin bættu kjör hennar og þátttaka hennar í stjórn rík-
is og framleiðslu, hefði ekki vakið hjá henni þann
óslökkvandi mennhmarþorsta, sem allir, er koma til
Sovjet-Rússlands, dást að.
5-ára áætlunin styður þessa sjálfsmenntunarþrá
fjöldans á alla vegu. Um allt landið hafa verið byggð
svonefnd lestrarhús. Samkvæmt áætluninni fjölgar
þeim úr 24924 árið 1926 upp í 383000 árið 1933. Bókas-
söfnunum fjölgar úr 22163 í 35000. Auk þess hafa
veriðbyggð alþýðu- <xj klúbbhús bæðiísveitum og borg-
um. Hin nýjustu þeirra eru risahallir með bókasöfn-
um, samkomusölum, leikfimisölum, leikhúsum, bíóum,
útvarpssölum o. s. frv. Tala þeirra eykst úr 11600 í
14-700. Bíó-liúsum fjölgar úr 8500 í 34700, auk 13700
skólabíóa. Tala viðtækja vex úr einni miljón í 13 milj.
Byggja skal 50 risavaxnar útvarpsstöðvar. Þær verða
með þeim stærstu í heimi, sumar þeirra margfalt
stærri en þær stærstu erlendis!
Bestu hugmynd um fróðleiksfýsn alþýðunnar og við-
leitni stjórnarinnar til að fullnægja henni fæst þó við
að athuga aukningu á upplögum bóka, tímarita og
blaða, og efni það, sem þær fjalla um.
Árið 1913 voru prentaðar alls 120 miljónir bóka, ár-
ið 1928 voru þær orðnar 220 miljónir, árið 1930 500
miljónir, samkvæmt 5-ára áætluninni áttu þær að verða
690 milj. en nú hefir orðið að breyta áætluninni þann-
ig, að í ár verða prentaðar 1200 miljónir bóka! Hundr-
aðshluti tekniskra bóka hefir vaxið úr 14 upp í 30
1930, og hundraðshluti bóka um þjóðfélagsfræði úr 3 í
50! »Kapitalið« eftir Marx er prentað árlega í 50000
eintökum. Bækur eftir Lenin og Leninismann voru á
tveim síðustu árum prentaðar í 60 milj. eint. Ræða
Stalins í fyrra um samyrkjuhreyfinguna og gallana
sem þá voru á henni og ákvarðanir miðstjórnar komm-