Réttur - 01.10.1934, Side 7
völdum, og þegar í öðru lagi skeðu þau undur, að
'Ólafur Thors gerðist sósíalisti samkvæmt ummælum
Jónasar frá Hriflu og Alþýðublaðsins, með því að lög-
leiða einokun á saltfiskverzluninni í hendur Kveldúlfi
og Alliance. Þá var lýst yfir því í aðalblaði Alþýðu-
flokksins, að nú mundi ,,batinn“ koma með vorinu, í
síðasta lagi!!
Vorið kom og eftir það sumar, og enn voraði tvisvar.
„Batinn” er ekki farinn að láta bóla á sér enn. Aftur
á móti hefir þetta skeð:
Atvinnuleysið hefir aukizt og heldur enn áfram að
aukast. Laun verkalýðsins hafa lækkað, bæði með
beinni launalækkun, en þó sérstaklega með hlutaráðn-
ingu sjómanna. Jafnframt þessu hefir afkoma verka-
lýðsins versnað með aukinni dýrtíð. Verðvísitala inn-
flutningsins (miðað við 100 árið 1914) var 119 árið
1931, en verðvísitala smásöluverðs fyrir útlendar vör-
ur er á sama tíma (miðað við 100 árið 1914) 154.
Verðvísitala útflutnings var 99 árið 1931, en vísitala
smásöluverðs fyrir innlendar vörur á sama tíma 190.
Utanríkisverslunin hefir minnkað stórkostlega:
1928 64,4 80,0 4” 15,6
1929 77,0 74,2 -r- 2,8
1930 72,0 60,1 -e- 11,9
1931 48,1 48,0 - 0,1
1932 34,1 47,4 + 13,3
1933 47,4 46,8 0,6
1934 til 1. ág. 28,2 19,7 -f- 8,5
Aðstaða ríkisins út á við hefir stórlega versnað.
Skuldir við útlönd nema nú 90—100 milljónum kr.
Markaður íslenzkra afurða erlendis hefir verið tak-
markaður mjög mikið. Milliríkjasamningar, sem gerð-
ir hafa verið á síðustu árum, hafa allir verið landinu
í óhag. Samkvæmt norsku samningunum eru Norð-
mönnum veitt fríðindi við síldveiðar hér og kjötút-
103