Réttur - 01.10.1934, Qupperneq 18
vinnandi stétt, síldarsjómennirnir, fóru til átthaga sinnai
með lakari afkomu en nokkru sinni fyrr.
Annað verkið var hækkun kjötverðsins um allt að því
107%, líklegast líka til að auka kaupgetu almennings..
Þriðja verkið voru svikin í mjólkurmálinu, bæði gagn-
vart smábændum og verkalýð, en Mjólkurbandalag Suð-
urlands græddi strax 100 þúsund krónur á þeirri skipu-
lagningu.
Fjórða verkið var „lækkun“ tolla á nauðsynjavörum
almennings. Það var farið þannig að því, að afnema
gengisviðaukann á kaffi og sykurtolli, en hækka skatt
á kaffibæti og öllum vörutolli að sama skapi!
Fimmta verkið var hækkun tóbaksverðsins, það er
að segja aðeins á ódýrustu tegundum tóbaksins.
Sjötta verkið er frumvarp um skipulagningu sjávar-
útvegsmálanna. Sú skipulagning felst í lögfestingu hluta-
ráðningarinnar og afnámi hinnar einu tryggingar sem
sjómenn höfðu fyrir greiðslu kaups síns, afnám sjó-
veðsins.
Sjöunda verkið er „skipulagningin“ á málum atvinnu-
leysingja. Atvinnuleysistryggingar ? Ónei! Heldur póli-
tisk einokun á hinni litlu atvinnubótavinnu, með vinnu-
miðlunarskrifstofu, sem hefir það verkefni að jafna
niður hungrinu.
Áttunda verkið er frumvarp um hækkun benzín-
skattsins um 100%, sem er árás á illa stadda bifreiða-
stjóra og smáútvegsmenn og þar með á alla alþýðu.
Loks flytur svo foringi þessa flokks, sem svo dyggi-
lega ætlar að aðstoða Alþýðuflokkinn við „framkvæmd“
jafnaðarstefnunnar á íslandi, Jónas frá Hriflu, frum-
varp, ásamt Magnúsi Guðmundssyni(!), um byggingu
fangelsa í öllum kaupstöðum landsins, sem hafa yfir 700
íbúa, til þess að hægt sé að hneppa í varðhald þá verka-
menn, sem skyldu ef til vill kunna að misskilja hina
einstöku velvild ríkisstjórnarinnar í sinn garð og fara
að gera „óspektir"!!
Og þó er ekki allt talið. Þó er þetta aðeins lausleg
114