Réttur - 01.10.1934, Blaðsíða 20
Samfylkingarhreyfing verkalýðsins undir forystu hins
byltingasinnaða hluta hans vex stöðugt. í átta löndum
Evrópu er sameining verkalýðsins orðin að veruleika.
Að sú samfylking takist hér einnig, er skilyrði fyrir
sigri verkalýðsins, fyrir valdatöku hans, fyrir Sovét-
Islandi.
Hinar nýju blekkingartillögur sósíaldemokrata munu
mélast í ölduróti harðnandi stéttabaráttu og vaxandi
pólitískrar stéttameðvitundar verkalýðsfjöldans. Þróun-
arkenning marxismans og leninismans stendur óhögguð.
„Til þess að útrýma marxismanum, yrði að útrýma
verklýðsstéttinni. Henni verður ekki útrýmt. Meira en
80 ár eru liðin síðan marxisminn kom fram. Á þeim
tíma hafa tugir og hundruð borgaralegra stjórnenda
reynt að útrýma marxismanum. Og hver er árangur-
inn? Borgaralegu stjórnirnar komu og fóru, en marxism-
inn er eftir. Meira að segja: Marxisminn hefir unnið
sigur á sjötta hluta jarðarinnar, og það verður ekki
skoðað sem nein tilviljun, að þetta land er eina landið,
þar sem engin kreppa er og ekkert atvinnuleysi“.
(Stalin). X.
’WIH erum öM tófsek.
Saga eftir Agnes Smedly.
Af þaki eins helzta hótelsins í Kanton var ég áhorf-
andi að brúðkaupi háttstandandi herforingja, sem
auðmenn borgarinnar sátu. Á eftir vígslunni var setzt
að veizlu, sem kostaði þúsund dollara. Hótelið var al-
skrýtt blómsveigum, rafmagnsljósum og fánum. Brúð-
kaupsgjafirnar fylltu fleiri herbergi. Hljómsveitir léku,
og flugeldum var skotið til heiðurs brúðhjónunum.
Brúðguminn var nýkominn heim úr einni af hinum
sífelldu borgarastyrjöldum, og sigri hans var tekið
með miklum fögnuði af samherjum hans, auðmönnun-
um í Kanton. Hann var hershöfðinginn og kom heim
116