Réttur - 01.10.1934, Qupperneq 29
um og út af RauÖa torginu, allar tegundir hersins,
hver af annari, landvarnarher, sjóher, flugher, fót-
göngulið, riddaralið, stórskotalið með vélbyssur, fall-
byssur, bryndrekar, stórkostlegra og stórkostlegra,
har til yfir tók, þegar flugvélarnar runnu upp í fleyg-
myndaðri fylking, 9 og 9 í hóp, hundrað eftir hundr-
að, unz himininn dökknaði af sveim þeirra. Er þytur
þeirra blandaðist saman við skrolt bryndrekanna,
fannst manni Rauða torgið komið á hreifingu og jörð
og loft skjálfa. 1 rúma tvo klukkutíma, frá kl. 15
mínútur fyrir 11 til kl. 10 mínútur fyrir 1 stóð her-
sýningin yfir. En þegar henni var lokið, var eins og
flóðgátt opnaðist eða hlaup kæmi í fljót. í ólgandi
straumi flæddi verkafólkið yfir Rauða torgið, það kom
hvarvetna að, rann þar samar j breiðan straum og
kvíslaðist síðan aftur út í íarvegi borgarinnar. Sjón-
arsviðið var skyndilega breytt, nýr svipur var lcominn
á torgið. Ósjálfrátt varð manni litið til himins, eins
og til kastljósa í leikhúsi. Gráa slæðan var horfin og
komið bjart sólskin. Og þegar litið er betur á mann-
hafið, er í fyrstu sýnist óreglulegt, má greina þar
skipulegar fylkingar eins og áður, fyrst vopnaðar
sveitir, undir margskonar fánum, síðan hverja fylk-
inguna af annarri með marglitt skraut. í stað hersýn-
ingar fer hér fram einskonar iðnaðarsýning. Þarna
streyma iðnaðarherdeildir frá öllum hugsanlegum
verksmiðjum, með myndir og modell af framleiðsl-
unni, með áætlanir, útstrikaðar tölur, nýjar tölur und-
ir, hundraðstölur og aftur hundraðstölur, óteljandi á-
letranir á allavega litum dúkum. Og þarna sjáum við
ógrynni af myndum af ýmsum mönnum. Marga þekkj-
um við, Lenin, Stalin, Marx, Vorosjiloff, Kalinin, Dimi-
troff, Thálmann og marga fleiri. En enn koma nokkr-
ar, hvað eftir annað. Það eru Tsjeljuskinhetjurnar og
Isotoff, hin þjóðfræga hetja úr kolanámunum í Don-
bass. Og enn kemur ótrúlegur grúi, það eru mestu af-
reksmennirnir úr hverri verksmiðju. Við þekkjum þá
125