Réttur - 01.10.1934, Síða 44
i galskaben". Baktjaldamennirnir í Berlín urðu hikandi,.
þegar til úrslitanna kom, valdránstilraunin misheppn-
aðist, og hinir frönsku og ítölsku herir stóðu þar sem.
þeir voru komnir.
En nú snéri Hitler við blaðinu. Á meðan fylgismenn.
hans í Austurríki stóðu enn í vopnaðri viðureign við
liðssveitir stjórnarinnar, lét hann tilkynna þeim, aö
hver sá nazisti, sem vogaði sér að flýja yfir þýzk landa-
mæri, myndi verða handtekinn tafarlaust. Óðar en séð
varð, að austurríska tilraunin myndi mistakast, brást
hann smánarlega sínum austurrísku sveitum, til þess að
reyna að bjarga sér í áliti hinna erlendu stjórnarvalda
og breiða yfir hlutdeild sína í æfintýrinu. Þegar í óefni
var komið, sveik „foringinn" liðsmenn sína. Þetta hefir
meira en nokkuð annað orðið til að hnekkja fylgi Hitl-
ersstefnunnar meðal þess hluta austurrískra verka-
manna og smáborgara, sem fylgt höfðu henni, eflaust
í góðri trú og von um, að þaðan væri frelsis að vænta.
25. júlí er skapadægur Hitlersfasismans í Austurríki,.
eins og febrúardagarnir urðu örlagastund sósíalfasism-
ans. Og Dollfuszfasisminn á nú, ef unnt er, enn þá minni
lýðhylli að fagna en í lifanda lífi höfundar síns. Aðal-
farartálmunum hefir verið rutt úr vegi öreigabyltingar-
innar. Verkalýðurinn býr sig undir úrslitabaráttuna.
Dauði Hindenburgs. Forsetakosningarnar. 2. ágúst
lézt Hindenburg á búgarði sínum í Neudeck. Sama dag
samþykkti ráðherrafundur lög um, að eftirmaður Hind-
enburgs í forsetastóli skyldi verða Hitler. Þessi lög
gengu þegar í gildi. Og 19. ágúst fóru fram kosningar,
þar sem þjóðin var látin „kjósa“ hinn sjálfskipaða for-
seta! í sannleika sagt, ákaflega nazistísk aðferð.
Nazistarnir ætla að gera Hindenburg að þjóðardýrl-
ingi — manninn, sem Hitler kallaði þjóðarsvikara og
öðrum illum nöfnum, þegar báðir voru í kjöri við ríkis-
forsetakosningarnar 1932. En síðan hefir margt breytzt.
Hindenburg, sem aldrei var neinn rétttrúaður nazisti í
140