Réttur - 01.10.1934, Qupperneq 55
vanræktu „vinstri lýveldissinnar“, sem höfðu á
valdi sínu stjórn hreyfingarinnar, að afvopna borg-
aravarðliðið, en fá verkalýðnum vopnin í hendur, eins
og hann gerði kröfur til. Þar með gáfu þeir hershöfð-
ingjum stjórnarinnar svigrúm til að ráðast með her
inn á uppreisnarstöðvarnar, án þess að viðnám yrði
veitt. Og anarkistaforingjarnir sviku byltinguna á
smánarlegan hátt, með því að aflýsa allsherjarverk-
fallinu og hvetja til mótþróaleysis. Samt &em áður
höfðu því nær allar borgir og þorp í Katalóníu lýst yf-
ir lýðveldinu, og í fjölmörgum borgum voru meira að
segja stofnuð verkamannaráð og lýst yfir verka-
manna- og bændastjórn.
í mörgum af þýðingarmestu borgum Spánar voru
gerð götuvígi, og verkamenn börðust eins og ljón
gegn sveitum afturhaldsins. Mörgum borgum náðu
uppreisnarmenn talgieriega á vald sitt. Víða tókst
verkalýðnum að ná bændum til bandalags við sig.
Uppreisnin var að miklu leyti í höndum verkalýðs-
sambandsins.
1 Astúríú, aðaliðnaðarhéraði Spáriar, náði byltingin
sínum glæsilegasta hátindi — enn ein sönnun fyrir
þeim höfuðsannindum marxismans, að verkalýðurinn
verður og hlýtur að hafa forystuna í frelsisbaráttu
allra kúgaðra. í hálfan mánuð var hið mikla náma-
hérað algerlega á valdi uppreisnarmanna. 1 15 daga
blakti fáni byltingarinnar yfir þessu nýja ríki verka-
lýðsins, hinni ógleymanlegu Sovét-Astúríú!
Nóttina 5. október byrjuðu bardagarnir. 1 grimmi-
legum orustum tókst hinum rauðu herdeildum að yfir-
buga stjórnarsveitirnar, afvopna borgaravarðliðið og ná
héraðinu á sitt vald. 20.000 rauðra hermanna börð-
ust um höfuðborgina Oviedo.
Þegar í stað var byrjað á því að koma upp öflugum
verkamannaher, skipuleggja matvæladreifingu, heil-
brigðismál og því um líkt. Fyrirmyndar regla var á
öllu opinberu lífi, meðan verkamannastjórnin hafði
151