Réttur


Réttur - 01.10.1934, Side 56

Réttur - 01.10.1934, Side 56
ráðin. Þetta verða jafnvel borgaraleg málgögn Spánar að viðurkenna og hrekja þar með hinar lognu fregnir Lerroux-stjórnarinnar um hryðjuverk uppreisnar- manna. Eitt þessara blaða, „Ahora“, segir um atburð- ina í hafnarborginni Gijon: „Það er skylt að viðurkenna, að uppreisnarmenn drýgðu enga glæpi gagnvart meðborgurum sínum,. ekki einu sinni gegn þeim, sem voru fjandsamlega sinnaðir hinum hættulega leik, sem þeir höfðu byrj- að. Uppreisnarmenn náðu á vald sitt tóbaksverk- smiðjunni og lögðu eignarhald á hjúkrunargögn verksmiðjunnar. En þrátt fyrir hinar miklu tóbaks- birgðir, sem þar voru, keyptu uppreisnarmenn allt það tóbak, sem þeir reyktu, í tóbaksbúðum hverfis- ins. Við hvers konar ránum lögðu þeir þungar refsingar“. Blað Gil Robles, „E1 Debate“, segir eftir fréttarit- ara sínum í Astúríú: „Þegar í byrjun festu uppreisnarmenn ávörp á múrana, þar sem stóð, að dauðahegning væri lögð við því, að ráðast á einstaklinga, trufla heimilis- friðinn, o. s. frv. Þessar ráðstafanir tryggðu það, að allt fór fram með fulkominni reglu“. Byltingasinnaðir verkamenn í Astúríu sendu Komm- únistaflokki Spánar eftirfarandi bréf, sem gefur á- gæta hugmynd um atburðina: „Héraðið er óskipt í okkar höndum. Við höfum lýst yfir hinu sósíalistiska lýðveldi verkamanna, bænda og hermanna. Við höfum 100.000 manna undir vopnum, auk 10.000 manna varðsveitar. — Verksmiðjur þær, sem undir okkar stjórn eru, fram- leiða fyrir okkur hergögn. Brauðgerðarmennirnir starfa dag og nótt. Á þriðjudaginn var náðum við vopnaverksmiðju borgarinnar Ovideo, ásamt 6.000 skotvopnum. Sama dag unnum við alla Oviedo, eft- ir að hafa setið um borgina í fimm daga. Þegar í stað lýstum við yfir verkamanna- og bændastjórn. 152

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.