Réttur - 01.10.1934, Side 87
skilja á alla vegu. Þegar þú ert í skóla, þá skrifar þú
út frá því, sem hver einasti guðfræðilærður maður veit,
að guðspjöllin flytja alls ekki neina heilsteypta kenn-
ingu eftir Jesú. Þar er hver setningin upp á móti ann-
arri, og um það má deila í það óendanlega, hvað Jesús
hefir sagt og hvað ekki, þótt gengið sé út frá honum
sem sögulegri persónu. Þetta er dæmi þess, hvernig þú
ferð með þekkingu þína. En hví skyldir þú taka upp á
því, að kalla kenningu Jesú jafnaðarhugsjón? Það er af
því, að þú vilt hjálpa til þess að draga hina byltinga-
sinnuðu verkamenn undir merki jafnaðarstefnunnar,
sem er í höndum þeirra manna, sem bezt hafa reynst í
því að afvegaleiða baráttu verkalýðsins, þar sem ekki
hefir tekizt að halda henni alveg niðri, og leiða hann
undir böðulsöxi fasismans, svo sem dæmin sýna í Þýzka-
landi og Austurríki. — Á þann hátt vinnur þú hús-
bónda þínum, auðvaldinu, ómetanlegt gagn. Eg fullyrði
ekki, að þú hafir hugsað málið á þessa leið. En sé svo
ekki, þá hefir þú stuðzt við eðlishvöt þína, eins og rotta,
sem flýr feigt skip, eða meri, sem flýr til húsa undan
illviðri. — Vísindin kenna, að á því lægra stigi sem
hugsanalífið sé hjá dýrunum, því öruggari leiðarvísir
sé eðlishvötin.
Þó hefir þú hvergi stigið sporið jafn djarft og á sviði
sagnfræðinnar. í Iðunnargrein þinni segir þú: „Höfum
við (þ. e. prestarnir) blóð lítilmagnanna á olckar sam-
vizku?“ Já — „sýkn er eg af blóði þessa saklausa
manns“, sagði Pílatus forðum daga. Fjandans mikinn
kjark þarf nú til þess að segja annað eins og það, að
prestarnir og kirkjan hafi ekki blóð lítilmagnanna á
samvizkunni. Hvert fermingarbarn á þó að vita, að
prestarnir hafa á liðnum öldum staðið fyrir ýmsum
ægilegustu hryðjuverkunum og lagt blessun sína yfir
flest hinna. Prestarnir krossfestu Jesú, brenndu Brúnó,
Mervede og Húss. Þeir hafa blessað fallbyssukúlurnar
og beðið guð að myrða óvinaþjóðirnar. Þetta veizt þú
«eins vel og eg. Og þú veizt meira. Þú veizt það, að prest-
183