Réttur - 01.10.1934, Síða 90
/
að afneita allri þinni þekkingu og skilningi, til þess að
hjálpa burgeisunum til að fótumtroða fátæka alþýðu á
Islandi.
Og þess er ekki að vænta, að þú linist í þeirri bar-
áttu fyrst um sinn. Auðvaldið kappkostar að veita þér
trúrra þjóna verðlaun. Það mun leggja fegurstu jörð-
ina í Eyjafirði undir fætur þér. Heitar lindir verma
jarðveginn og renna í pípum gegnum hverja stofu, vél-
tækir akrar spretta ósánir, og hver einasta tugga er
kúgæf. Þar ættir þú að geta safnað virðulegum holdum
og bundizt enn nánari tengslum arðránsstétt þjóðar-
innar. Verður þú þá ekki aðeins beinatík hennar, heldur
hold af hennar holdi og blóð af hennar blóði.
Berðu sóknarbörnunum kæra kveðju mína og sérstak-
lega fram í Saurbæjarhreppinn, og segðu þeim það, að
ef svo skyldi fara, að þeir hefðu guðsblessunina eina á
að lifa og þætti hún þunn, þá gætu þeir leitað til mín og
vitað, hvort eg gæti ekki gefið þeim einhver ráð, sem
fulltrúi hinnar byltingarsinnuðu verklýðshreyfingar.
Með vinsemd, þrátt fyrir allt.
Reykjavík, 13. október 1934.
Gunnar Benediktsson.
186