Réttur - 01.05.1937, Side 14
tryggja á eigin spítur minnihluta íhaldsins á Alþingí
eða þrýsta Framsókn til fylgis við ágreiningsmálin.
Fari svo, að samkomulag náist ekki við foringja Al-
þýðuflokksins um samvinnu verklýðsflokkanna, —
sem mjög er ótrúlegt á slíkum alvörutímum, — verð-
ur Kommúnistaflokkurinn að ganga einn til kosninga
og koma þrem mönnum á þing, tryggja þannig ósigur
íhaldsins og styrkja vinstri arm Alþingis með þremur
ákveðnum og djörfum fulltrúum alþýðunnar í sveit og;
borg.
Hver einasti sannur verklýðssinni óskar þess af öll~
um huga sínum, að verkalýður fslands gangi til þess-
ara kosninga í einni órofa fylkingu, og sýni þannig
afturhaldinu hið ósigrandi afl samtaka sinna og sam-
heldni.
Samfyiking verklýðsflokkanna, hvert form sem hún
kýs sér, táknar sigur fólksins yfir fhaldinu.
Halldór Stefánsson;
1. maí
Eftir því sem fyrsti maí nálgaðist, varð Sölvi úr-
smiður sífellt í æstara skapi.
Það voru nú mörg ár síðan hann fór að veita þess-
um degi sérstaka athygli, eða réttara orðað: síðan
hinir óttalegu viðburðir, sem jafnan fylgdu þessum
degi, fóru að raska jafnvægi sálar hans.
Þessir dagar höfðu haft margbreytileg áhrif á
hann, ár frá ári. í fyrsta skipti vakti það hjá hon-
um hreina skelfingu að sjá múginn fylla göturnar
og veifa blóðrauðum fánum, heyra hann syngja blóð-
drjúpandi byltingarsöngva og vita, að hann hélt há-
94