Réttur


Réttur - 01.05.1937, Side 27

Réttur - 01.05.1937, Side 27
iíomulagi hliðstæðra flokka í Þýzkalandi, sem gerði fasistum valdatökuna svo auðvelda árið 1933. Svo hefir virzt um skeið sem kappkostuðu vinstriforingj- ar á Alþingi að gera hvert ágreiningsmál sín á milli að óbrúandi hafi, en höfuðóvinurinn hefir verið lagður á hilluna til þess að samherjarnir gætu barizt. Einna fjarst frá öllum tengslum við umbjóðendur sína, vinstrikjósendur í landinu, hafa foringjarnir komizt í hinum einkennilegu þingdeilum sínum um tvenn bráðabirgðalög á dögunum. Suma daga hefir litið svo út sem foringjarnir væru í sérstöku kapphlaupi eftir því málefni, sem hentugast væri til að koma í veg fyrir alla vinstri samvinnu og létta íhaldinu valda- tökuna. Þetta atferli hefir orðið þess valdandi að ýms- ir einlægustu vinstri menn í landinu, úr öllum flokk- um, ræða nú um hverra ráða skuli neytt til að binda enda á slíkan óvinafagnað, en sameina alla vinstri krafta í landinu til bandalags, efla þá til sameigin- legra átaka og gagnkvæmrar tilhliðrunar í þeim kosn- ingum, sem fara í hönd. Ég vil aðeins minnast hér á tvö lagaírumvörp, sem íoringjarnir hafa deilt um opinberlega og látið í veðri vaka að í þeim málum væri ekki til samkomulags- grundvöllur milli vinstriflokkanna í landinu. Annað frumvarpið er frá Alþýðuflokknum um alhliða við- reisn sjávarútvegsins, sem m. a. kveður svo á að ríki, bæjarfélög og einstaklingar skuli í senn gerast rek- endur togaraflotans, og byggist þessi lausn á þeirri staðreynd að einkafyrirtæki þessa atvinnuvegar eru að verða gjaldþrota og enginn einkabanki til í land- inu að endurreisa raunverulegan einkarekstur á þess- iim atvinnuvegi. Kjarninn í stefnuskrá íhaldsins í sjávarútvegsmál- um er sá, að það eigi að láta prívatmenn hlaupa burt með ágóðann af þessum atvinnuvegi, en ,,þjóðnýta“ töpin. Þetta er öfug þjóðnýting, hin algera andstæða 107

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.