Réttur - 01.03.1938, Síða 7
taka höndum saman. Kommúnistaflokkurinn, Al-
þýðuflokkurinn, Framsókn og meginhluti Sjálfstæð-
isflokksins — allir nema spillt foringjaklíka undir
áhrifum braskara, sem eru að reyna að selja landið
sjálft, eftir að þeir eru búnir að rýja banka þess, —
allir þeir, sem vilja vernda lýðræði og sjálfstæði
landsins, eiga að vinna saman, skapa sterka þjóðfylk-
ingu gegn fasismanum. Hvergi ætti slík þjóðfylking
uð hafa hlutfallslega eins mikinn hluta þjóðarinnar
á bak við s.ig og hér, sökum þess að hér á að vera
hægt að einangra þá auðmannaklíku, sem allsstaðar
spillir lýðræðinu og undirbýr fasismann. Hér saman-
stendur þessi auðmannaklíka mestmegnis af heild-
sölum og bröskurum, sem hafa andstæða hagsmuni
við þjóðina og vinna í samráði við féndur hennar.
Ekki aðe.ins vinnandi stéttirnar, heldur og meginhluti
atvinnurekenda í útgerð, innlendum iðnaði og hvers-
konar framleiðslu, hafa andstæða hagsmuni við þessa
heildsalaklíku og bandamenn hennar í Landsbankan-
um og fiskhringnum.
Það, sem þarf til þess að takist að skapa þá þjóð-
fylkingu, sem framtíð íslenzku þjóðarinnar nú velt-
ur á, er að vinstri flokkarnir læri tafarlaust af reynsl-
unni erlendis, yfirvinni vesaldóminn, sem er að leggja
lýðræðið í gröfina, og afnemi sundrungina, sem býð-
ur fasismanum heim og opnar fyrir honum fylking-
arnar.
Fyrstu sporin, sem stíga verður til þess, er samein-
ing Kommúnistaflokksins og Alþýðuflokksins í sterk-
an, einbeittan, sósíalistiskan verklýðsflokk, sem þori
og geti varið lýðræðið og jafnframt framkvæmt slík-
ar þjóðfélagsendurbætur, að lýðræðið verði fólkinu
hjartfólgið.
Og samtímis þessari sameiningu verður að skapa
traust bandalag milli verklýðsflokksins og Framsókn-
.arflokksins, milli verklýðsfélaganna og samvinnufé-
Jaganna, til að vinna að heill hinnar vinnandi þjóðar
7