Réttur - 01.03.1938, Side 31
Þ. e. a. s. það þurfi að svipta auðmannastéttina öllu
valdi yfir atvinnu- og framleiðslutækjum, fjármálum
og öllum þáttum ríkisvaldsins, og stofnsetja í staðinn
sameignarríki, þar sem eignaréttur einstaklinga yfir
stórframleiðslu er ekki til, en öll verðmæti og atvinnu-
tæki eru þjóðfélagsleg sameign, og ríkisvaldið er í
höndum alþýðunnar og veitir henni allan stuðning, er
það megnar. Og alþýðan notar þetta ríkisvald sitt fyrst
og fremst til þess að útrýma völdum og áhrifum auð-
mannastéttarinnar, andlegum og efnislegum.
Þrátt fyrir þau 90 ár, sem liðin eru frá útkomu
Ávarpsins, heldur það í flestum atriðum sínu fulla gildi,
og meginefni þess er sígilt og mun aldrei þarfnast um-
bóta eða leiðréttinga.
Kommúnistaávarpið hefir verið þýtt á flest öll tungu-
mál í heimi, og er tvímælalaust lang útbreiddasta fræði-
rit verklýðshreyfingarinnar.
Ávarpið er til á íslenzku, og vill Réttur nota þessi
tímamót í sögu þess, til að minna alþýðu landsins á
þetta vopn, því fræðsla þess er hverjum alþýðumanni
ómetanlegur styrkur.
Þér óskapist yfir því, að vér viljum afnema eignarréttinn.
En í yðar þjóðfélagi geta niu tíundu hlutar mannanna ekkert
eignazt. Og hinir hafa eignarrétt aðeins þessvegna, að fjöldinn
hefir hann ekki. Þér ásakið oss þannig fyrir að vilja afnema
eignarrétt, sem er því óhjákvæmilega skilyrði bundinn, að yfir-
gnæfandi meirihluti þjóðfélagsins eigi ekki neitt.
í raun og veru ásakið þér oss aðeins fyrir það, að vér viljum
afnema yðar eignarétt. En það ætlum vér nú samt að gera.
Prá þeirri stundu, að ekki er lengur hægt að breyta vinnunni
í auðmagn: peninga, jarðrentu eða annað félagslegt afl, sem ein
stétt geti svælt undir sig — með öðrum orðum, þegar persónu-
legur eignarréttur getur ekki lengur breytzt í borgaralegan, segið
þér, að persónuleikinn sé eyðilagður.
Þér játið þá, að persónuleiki sé í yðar augum ekkert annað
en borgarinn, auðmaðurinn á vorum dögum. Það er rétt, þessi
persónuleiki verður afnuminn. (Kommúmstaávarpið).
31