Réttur - 01.03.1939, Blaðsíða 21
öld í Kína á annað ár, sundrar hinum feiknamikla kín-
verska markaði og lokar honum nær alveg fyrir vörum
annarra landa, — samtímis því að Ítalía og Þýzkaland
umskapa atvinnulíf sitt til hernaðarþarfa og hafa eytt
til þess hráefnum sínum og gullforða, — samtímis því
að öll hin stórveldin búast til stríðs.
Af þessu leiðir, að auðvaldsskipulagið hefir miklu
takmarkaðra svigrúm til eðlilegrar leiðar út úr yfir-
standandi kreppu en þeirri næstu á undan.
Loks er núverandi kreppa ekki almenn ltreppa, eins
og hin undanfarandi, heldur nær fyrst tökum á fjár-
hagslega vel stæðum löndum, er ekki hafa enn umskap-
að ^tvinnulíf sitt til hernaðarþarfa. Hvað friðrofaríkin
snertir, svo sem Japan, Ítalíu og Þýzkaland, er þegar
hafa umskapað atvinnulíf sitt til hernaðarþarfa, hafa
þau enn ekki lent í offramleiðslukreppu vegna ákafrar
aukningar stríðsiðnaðar, — en að því dregur. Það þýðir
að þegar hin atvinnulega sterku, friðsömu lönd fara að
losna úr kreppunni, hljóta árásarríkin að lenda í harð-
vítugustu kreppu, vegna þess að þau hafa eytt hráefn-
um sínum og gullforða í hinn óða stríðsundirbúning.
Þetta verður nú þegar augljóst af samanburði á hin-
um opinbera gullforða auðvaldslandanna.
Opinber gullforði auðvaldslandanna.
(í milljónum gamalla gulldollara).
Árslok 1936 Árslok 1938
Samtals . . . 12980 14301
Bandaríkin . 6649 8126
England . . . 2029 2396
Frakkland . . 1769 1435
Holland . . . 289 595
Belgía .... 373 318
Sviss 387 407
Þýzkaland. . 16 17
Ítalía 123 124
Japan .... 273 97
21