Réttur


Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 16

Réttur - 01.01.1968, Blaðsíða 16
ferðina. Árið 1948 stöðvuðu erindrekarnir slík viðskipti alveg og hlauzt atvinnuleysi og kreppa af 1951—2, unz aftur voru þau upp- tekin. Frá 1959 hafa þau í nafni „frelsisins" verið minkuð úr 33% heildarútflutningsins niður í 11% — og vofir nú kreppa og at- vinnuleysi yfir á ný. Með þessum ráðstöfunum verður Island á ný háð öllum dutlungum markaðs í auðvalds- löndum og drottnun einokunarhringanna þar. En allar þessar hættulegu og skaðlegu ráð- stafanir getur bandaríska valdið aðeins knúið fram í krafti áhrifavalds síns á íslenzka menn, embættismenn, valdamenn. Það er því sjálfskaparvíti, þegar íslenzk þjóð leiðir yfir sig atvinnuleysi og kreppu, af því forráðamenn hennar þóknast bandaríska valdinu. Bandaríska valdið treystir á fjármagn og fjölmiðlunartæki til þess að grafa undan sjálf- stæði og frelsisvilja Islendinga. Danska valdið átti hér mikinn þorra jarða, — konungsjarðir — og voru jarðir þá aðal- auðæfi á Islandi. Þá var það krafa íslenzkra þjóðfrelsissinna að Island eignaðist þær jarð- ir, — þær yrðu þjóðjarðir. Og svo varð. Nú heimta erindrekar hins erlenda valds að forríkir útlendir auðdrottnar eignist hér sem mest af verksmiðjum og vinnutækjum. Þannig á að ofurselja útlendu valdi drottnun yfir íslenzku efnahagslífi. Og þessir menn leyfa sér að kalla sig „Sjálfstæðismenn". Er það gott dæmi um þá brjálun hugtaka, sem amerísk áhrif valda. Danska valdið vann að því að gera ýmsa Islendinga „danska í lund". Ytti það þá oft undir hve gott það var slíkum að klifra upp embættisstigann og „komast áfram". Bandaríska valdið er stórtækara. Það hyggst með sjónvarpi sínu, útvarpi, kvik- myndum og hverskonar áróðri og tælingu umhverfa íslenzkri menningu, manndómi og þjóðerni. Þeir voldugu herrar Mammons ætla sér smátt og smátt að gera oss Islendinga svo ameríska í hugsun að oss finnist það háleitt markmið þjóð vorri að vera einskonar skyndi- skjöldur Bandaríkjanna: fórna lífi þjóðar vorrar til að hlífa Bandaríkjunum nokkrar mínútur, ef þau stofna til kjarnorkustríðs. Fornir nýlendudrottnar Islands reyndu árangurslaust að gera Islendinga sér her- skylda og endanlega var öllu slíku vísað á bug 1908 og eilífu hlutleysi yfir lýst 1918. Bandaríska valdinu tókst að brjála svo hugi manna að hlutleysinu var fórnað, landið sjálft gert herskylt og hluti í hernaðarbanda- lagi, og síðan fótaþurrka amerísks hers. Danska valdið olli oss áþján og erfiðleik- um og þjóð vor horfðist í augu við útþurrkun 1785, er aðeins voru 38 þúsund Islendingar eftir. Bandaríska valdið lætur hinsvegar Damo- klesarsverð kjarnorkustríðs hanga í veikum þræði yfir höfðum okkar — sem annarra þjóða. Og í þráðinn halda hershöfðingjar og ofstækismenn í Pentagon og Washington, sem geta í stórmennsku- og metnaðar-brjál- æði hvenær sem er höggvið á þann veika þráð — og afmáð þar með þjóð vora og aðrar. Eitt sinn var sagt: „Ottist ekki þá sem lík- amann deyða" .... En bandaríska valdið ætlar sér fyrst að deyða sálina, — þjóðarsál- ina, — forheimska hana og trylla, svo hún gefi sig „Mammonsríki Ameríku" á vald —• og það geti notað líkamann og landið að vild á eftir. 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.