Réttur


Réttur - 01.04.1970, Síða 4

Réttur - 01.04.1970, Síða 4
króna. Hækkun dollargengis varð 32,5%. Þetta var 6 dögum eftir að Bretar höfðu tii- kynnt um 14,3% lækkun á gengi pundsins. Auk Islendinga lækkuðu aðeins Danir og Spánverjar gengi gjaldmiðils síns í Evrópu. Áhrif gengislækkunarinnar voru nokkra mánuði að skila sér til fulls í verðlagi. En ekki var nóg að gert, og 3. september 1963 var lagt á 20% innflutningsgjald. Það var raunar ekki nema eins konar loftvarnarmerki um það, sem í aðsigi var (og hefur væntan- lega komið sér vel fyrir ýmsa). 11. nóvember 1968 Iækkaði Seðlabankinn enn gengið, og fór þá bandaríkjadalur upp í 88 krónur. Hækkun dollargengis varð nú 54,4%. A einu ári hafði því dollarinn og flestar aðrar gjaldeyristegundir hækkað um 105% en sterlings pund um 75%. Þetta hafði að sjálf- sögðu afar fjörgandi áhrif á verðlagið. Á einu ári, frá 1968 til 1969, reyndist verðlag samkvæmt neyzluvísitölu stíga um 24,1%, en það er líklega heimsmet í landi, sem ekki á í styrjöld. Kaup er vísitölubundið á þann hátt, að með ákveðnum fresti er bætt aukagreiðslum, verðlagsbótum ofan á umsamið grunnkaup, í hlutfalli við hækkun á framfærslukostnaði samkvæmt vísitölu. Dýrtíðaruppbót eða verðlagsbætur var fyrst farið að greiða hér á landi árið 1940, og stóð svo samfleytt fram til ársins 1960. Fyrsm 10 árin voru verðlagsbætur reiknaðar á mánaðar fresti, en síðan á 3ja mánaða fresti, og er svo enn. I upphafi „viðreisnar" sinnar árið 1960 ákvað núverandi ríkisstjórn að banna allar verðlagsbæmr á kaup (4. grein efnahagsmálalaga). Með júnísamkomulagi 1964 var ákveðið að taka að nýju upp verð- tryggingu launa, og var greidd verðlagsupp- bót eftir því fyrirkomulagi frá marz 1965 til nóvemberloka 1967. Seint í nóvember 1967 setti ríkisstjórnin lög, sem afnámu verðtryggingu laun1. „þar til annað hefur verið ákveðið með samning- um stéttarfélaga og samtaka vinnuveitenda". Jafnframt var kveðið á um aukningu verð- lagsuppbótar í sama hlutfalli og vísitala vöru og þjónustu á nýjum grundvelli hafði hækk- að frá 1. ágúst til 1. nóvember 1967 (að öðru leyti var nýi grundvöllurinn ekki tekinn upp fyrr en 2. janúar 1968). Þessi ráðstöfun þýddi 3,39% hækkun kaupgjalds 1. desember 1967, og hélzt það kaup fram til 18. marz 1968, er nýir kjarasamningar voru gerðir. Rétt er að staldra ögn við þessi 3,39%, því að bak við þau er talsverð saga, og þar er upphaf að þeirri þróun kjaramála, sem síðan hefur orðið. Verðlagi var haldið í skefjum á „verðstöðv- unar"tímabilinu frá hausti 1966 til hausts 1967 með miklum og sívaxandi niðurgreiðsJ- um á vöruverði. Sumpart upphófu þær verð- hækkanir, en duldu þær sumpart, þannig að þeirra gætti ekki í vísitölu framfærslukostn- aðar. Þetta var því aðéins hægt, að vísitalan var úrelt orðin og grundvöllur hennar mjög skakkur rniðað við neyzluvenjur. Á „verð- stöðvunartímabilinu" var því um kjararýrnun að ræða lijá launþegum, þótt kaupgreiðslu- vísitala væri í sambandi, því að engin hækkun mældist. Þegar hinar sérstöku „verðstöðvun- ar"-niðurgreiðslur voru felldar niður haustið 1967, stökk vísitalan úr 195 stigum í 205 (1. nóv.), og hækkaði þannig um 5,64%. Þetta var raunveruleg verðhækkun, að nokkru komin fram áður þótt dulin væri, og hana hefðu launþegar átt að fá að fullu bætta að verðtryggingarlögunum. Nú voru þau lög felld úr gildi, og hækkunaráhrif af niðurfell- ingu niðurgreiðslna bætt með annarri vísi- tölu en þeirri, sem mældi lækkunaráhrifin er þær voru settar á. Launþegar fengu 3,39% kauphækkun í stað 5,64% (hið minnsta), og þannig tapaðist þeim rúm 2%. 44

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.