Réttur


Réttur - 01.04.1970, Síða 8

Réttur - 01.04.1970, Síða 8
krónutala í verðlagsuppbót og á dagvinnu- taxta. Olli þetta fljótlega tilfinnanlegri lækk- un yfirvinnuálagsins. Arið 1967 hafði verið 50% álag á eftirvinnu og 91% á nætur- og helgidagavinnu hjá almennu verkalýðsfélög- unum. Nú sigu þessar álagsprósentur niður, unz ákveðið var með samningum 19- maí 1969 að frysta þær í 40% og 80%, og fékkst þeim ekki breytt í nýgerðum samning- um. Það fyrirkomulag, að verðlagsuppbótin er ekki hlutfallsleg á allt kaup, hefur valdið mikilli innbyrðis röskun kauptaxta. Til að skýra það nægir einfalt dæmi: Fram til dags- ins í dag (júní 1970) hefur það kaup, sem var 10.000 krónur á mánuði desember 1967, hækkað af völdum verðlagsuppbótar upp í 13.532 kr. (samanber næstneðsm línu í töflu I). Kaup, sem var 15.000 kr., hefur hækkað um sömu upphæð eða upp í 18.532 kr. Hækkunarhlutfallið á 10 þúsund króna kaup- ið er vitanlega jafnt verðlagsuppbótinni, 35,3%, en 15 þúsund króna kaupið hefur ekki hækkað nema um 23,5%. Þetta hefur valdið tilfinnanlegum óþægindum hjá þeim atvinnurekendum, sem hafa hálaunamenn í þjónustu sinni, þó líklega hvergi frekar en hjá ríkinu sjálfu og kemur það vel á vondan. Til að mynda mun enginn háskólagenginn maður fást til starfa í stjórnarráði landsins upp á þau kjör, sem vísitöluskerðingin hefur skammtað launastiga BSRB! Þróun kjaramála frá 1967 til 1970 sést vel í töflu I. Skal þá fylgja aftasta dálki ofanfrá og niðurúr, en hann sýnir misgengi verðlags og launa á hverjum tíma allt frá september 1967 til seinni hluta júnímánaðar 1970. Mis- gengið nær hérumbil 7% í nóvember 1967 og er svolítið hoppandi kringum þá tölu, þó aðallega uppfyrir, fram á seinni hluta árs 1968. Eftir það verður mikil kjaraskerðing, og stafar hún af því að atvinnurekendur (og fjármálaráðherra) neituðu að greiða hærri verðlagsuppbót en 11,35%. Stóð svo til 19. maí 1969, er gerðir voru nýir samningar við verkalýðsfélögin með verðlagsuppbót 23,35%. Fyrir þá samninga stóð misgengið í 24%-um en eftir þá fyrsr í 12. Samning- arnir fólu hins vegar í sér æ frekari rýrnun kaupmáttar með vaxandi verðbólgu, þannig að misgengi verðlags og launa var komið upp í rúm 20% í maí sl., þegar verkalýðsfélögin létu sverfa til stáls í samningaviðræðum og hófu verkfall til framdráttar kröfum sínum (þau fyrstu 27. maí). Samningar þeir sem náðust 19- júní hjá almennu verkalýðsfélögunum undir forustu Dagsbrúnar gera nokkurn veginn að ná aft- ur sama kaupmætti og ríkti á „verðstöðv- unar'tímabilinu 1966—67 að því er varðar lægstu laun, eða samsvarandi tíu þúsund króna mánaðarlaunum í desember 1967. Er þá reiknað með 15 % kauphækkun ofaná það kaup, sem ella hefði verið greitt frá 1. júní sl. (samanber töflu I: 15% ofan 13.532 gera 15.562 og lyftir „vísitölu dagvinnulauna" upp í 160,9 stig). Leggja ber áherzlu á, að misgengistalan 1,2% á einungis við „tíu- þúsundkrónalaun" samkvæmt skilgreiningu hér að framan og við dagvinnu eina. Að svo miklu leyti sem ekki hafa komið til taxta- tilfærslur, vantar nokkuð á, að hærra kaup og einkum þó yfirvinnukaup hafi náð kaup- mætti frá 1967. Nú er rétt að líta á töflu II um tímakaup- taxta Dagsbrúnár fyrir ýmislega vinnu. Þar greinir í I. dálki kaup í september 1967 og síðan í 2. dálki kaup það sem gilti í marz- apríl-maí 1970 (verðlagsuppbót 30,84%). Þar sézt einnig, að hækkun kaupsins frá 196 / nemur frá 30 til 37% á tilgreinda taxta, að sjálfsögðu minni á hærri taxtana en þá lægri vegna skerðingarákvæða vísitölubótanna. I 3. dálki greinir það kaup sem vera þyrfti, ef 48

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.