Réttur


Réttur - 01.04.1970, Qupperneq 12

Réttur - 01.04.1970, Qupperneq 12
leitt illa eftir kosningarnar. Flokkurinn vann að vísu mann í Reykjavík, en tapaði miklu sums staðar, t. d. meirihlutanum í Borgarnesi, tapaði í Keflavík og Vestmannaeyjum og á Austurlandi öllu virðist fylgi Framsóknar- manna mjög í rénum, en þar hafa þeir til þessa yfirleitt haft ríflegan meirihluta meðal kjósenda. Hannibalistar eru sjálfir óánægðir með út- komu F-listans í Reykjavík; mættu þó vera ánægðir því að listinn fékk talsvert persónu- fylgi Steinunnar Finnbogadóttur umfram al- mennt fylgi hannibalista. Hannibalistar eru afar óánægðir með frammistöðu Björns Jóns- sonar í Norðurlandi eystra yfirleitt og sér- staklega þó á Akureyri. F-listi kom aðeins fram á Akureyri, á Húsavík var samið við Alþýðubandalagið í trássi við Björn, á Ol- afsfirði buðu hannibalistar alls ekki fram. Fjallað hefur verið um útkomu Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík en hér á eftir verð- ur greint frá útkomu flokksins í öðrum kjör- dæmum. VESTURL ANDSKJ ÖRDÆMI Akranes: G-listinn fékk 307 atkvæði og einn mann, Arsæl Valdimarsson, hafði einn mann og 262 atkvæði síðast þegar Alþýðu- bandalagið bauð eitt fram, 1962. Borgarnes: G-listinn fékk 58 atkvæði og og engan mann. Hafði síðast 63 atkvæði og einn mann. Hellissandur: G-listinn hlaut 49 atkvæði og einn mann, Skúla Alexandersson. Alþýðu- bandalagið átti ekki mann í hreppsnefnd síð- asta kjörtímabil. Grundarfjörður: G-listinn fékk 64 at- kvæði og einn mann, Sigurvin Bergsson. 52 1966 fékk G-listinn 57 atkvæði og einn mann. Stykkishólmur: G-listinn hlaut 80 atkvæði og einn mann, Olaf Jónsson. G-listinn hlaut 1966 100 atkvæði og tvo menn. I Olafsvík var sjálfkjörið í hreppsnefnd. VF.STFIRÐIR Flokksframboð komu aðeins fram á stærstu stöðunum á Vestfjörðum. Á Bíldudal studdu Alþýðubandalagsmenn K-lista, sem hlaut 90 atkvæði, á Þingeyri H-lista sem hlaut 30 at- kvæði og einn mann, Guðmund Friðgeir Magnússon. Isafjörður: G-listinn á Isafirði hlaut 154 atkvæði og einn mann kjörinn Aage Steins- son. Hafði 1966 160 atkvæði og einn mann. Isafjörður var aðalvígi Hannibals vestra. Þar bauð hann ekki fram. Suðureyri: G-listinn hlaut 50 atkvæði og einn mann, Gest Kristinsson, og var þetta í fyrsta sinn sem Alþýðubandalagið var með sérstakt framboð á Suðureyri. NORÐURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA Þar var flokksframboð á þremur stöðunv. Skagaströnd: G-listinn hafði 35 atkvæði og einn mann, Kristinn Jóhannsson. 1966 fékk G-listinn 55 atkvæði og einn mann kjörinn. Sauðárkrókur: G-listinn fékk 79 atkvæði og engan kjörinn. 1966 fékk G-listinn 96 atkvæði og einn kjörinn.

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.