Réttur


Réttur - 01.04.1970, Side 13

Réttur - 01.04.1970, Side 13
Siglufjörður: G-listinn hlaut 321 atkvæði og þrjá menn kjörna: Benedikt Sigurðsson, Gunnar Rafn Sigurbjörnsson og Kolbein Friðbjarnarson. 1966 hlaut G-listinn 312 at- kvæði á Siglufirði og tvo menn, hefur þann- ig bætt við sig einum bæjarfulltrúa og er nú Alþýðubandalagið stærsti flokkurinn á Siglu- firði. NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA Erfitt er að bera saman úrslitin 1966 og nú í Norðurlandskjördæmi eystra þar sem þetta kjördæmi er höfuðvígi Hannibalista. G-listar komu fram á 3 stöðum í kjördæm- inu: Ólafsfjörður: G-listinn hlaut 86 atkvæði og Björn Þór Olafsson var kjörinn. Alþýðu- bandalagið hefur ekki boðið eitt fram á Ol- afsfirði áður. Akureyri: Það er erfitt að bera saman fylgi Alþýðubandalagsins á Akureyri 1970 og 1966. Björn Jónsson hafði verið þingmað- ur og bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins og Sósíalistaflokksins þar árum saman og þeg- ar hann sagði skilið við Alþýðubandalagið hlutu að koma upp margvíslegir erfiðleikar hjá Alþýðubandalagsmönnum. I síðustu bæj- arstjórnarkosningum á Akureyri hlaut G-list- inn sem þá var studdur af Birni Jónssyni 934 atkvæði. G-listinn hlaut nú 1970 514 at- kvæði, en listi Björns Jónssonar 727. Má segja með nokkrum sanni að aðstaða Björns á Akureyri gagnvart Alþýðubandalaginu sé svipuð og aðstaða Geirs Hallgrímssonar í Reykjavík ef hann byði fram gegn Sjálfstæð- isflokknum. Þrátt fyrir þennan gífurlega að- stöðumun heldur Alþýðubandalagið sínum bæjarfulltrúa; Björn sínum. Bæjarfulltrúarn- ir tveir sem kjörnir voru af G-lista 1966 skiptast þannig á milli þessara tveggja aðila. Soffía Guðmundsdóttir er bæjarfulltrúi Al- þýðubandalagsins á Akureyri. Húsavík: Gera má ráð fyrir því að fylgis- menn Alþýðubandalagsins í landsmálum skiptist á tvo lista á Húsavík, H og I lista. Sumir telja að Alþýðubandalagið eigi 200 atkvæði á Húsavík, en ekki er auðvelt að átta sig á hreinni skiptingu milli flokka þar nú fremur en endranær. Jóhanna Aðalsteins- dóttir, form. Alþýðubandalagsins á Húsavík, er þar bæjarfulltrúi fyrir Sameinaða kjós- endur, kosin af I-lista. Raufarhöfn: Utan kaupstaðanna kom fram G-listi á einum stað í Norðurlandskjördæmi eystra, á Raufarhöfn. Þar bauð Alþýðubanda- lagið fram gegn fráfarandi hreppsnefnd sem ætlaði að sleppa við kosningar með hrossa- kaupum. Þarna fékk Alþýðubandalagið 88 atkvæði, eða 44% greiddra atkvæða og tvo hreppsnefndarmenn: Guðmund Lúðvíksson og Angantý Einarsson. AUSTURLAND Neskaupstaður: Alþýðubandalagið hélt meirihluta sínum í Neskaupstað, þó með naumindum væri. Hlaut listinn 390 atkvæði og 5 menn kjörna: Bjarna Þórðarson, Jó- hannes Stefánsson, Jóhann K. Sigurðsson, Kristinn V. Jóhannsson og Magna Sigurðs- son. Austurland, málgagn flokksins á Aust- urlandi, sagði um úrslitin: „Alþýðubandalag- ið í Neskaupstað límr ekki á úrslitin sem ósigur. Urslitin sýna það og sanna að fylgi þess stendur traustum fótum þar sem því tókst að halda meirihlutanum við hina erf- iðu kreppu sem gekk yfir síðasta kjörtímabil 53

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.