Réttur


Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 14

Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 14
... En úrslitin eru Alþýðubandalagsmönnum vissulega þörf áminning ... Urslitin verða okkur hvöt til þess að auka og efla okkar félagslega starf á öllum sviðum." Enda þótt Alþýðubandalagsmenn á Neskaupstað séu ekki ánægðir með úrslitin þar líta Alþýðu- bándalagsmenn um allt land stoltir til Nes- kaupstaðar og þeirrar traustu forustu sem þar hefur stýrt hreyfingu sósíalista í áratugi. Seyðisfjörður: Alþýðubandalagið hefur æv- inlega haft heldur lítið fylgi á Seyðisfirði; og hefur þar nú bæjarfulltrúa með 46 at- kvæðum, Gísla Sigurðsson. I síðustu kosn- ingum 1965 hlaut G-listinn 40 atkvæði á Seyðisfirði og einn bæjarfulltrúa. Reyðarfiörður: Á Reyðarfirði fékk G-list- inn nú nákvæmlega sömu atkvæðatölu og 1966, 57 atkvæði, og einn hreppsnefndar- mann Helga Seljan. Eskifjörður: Á Eskifirði bætti Alþýðu- bandalagið verulega við sig í atkvæðum; hafði síðast 78 atkvæði og einn mann kjör- inn, en nú 117 atkvæði og tvo menn kjörna, Alfreð Guðnason og Grétar Sveinsson. Hornafjörður: A Höfn í Hornafirði jók G-listinn mjög fylgi sitt, úr 53 atkvæðum í 91 atkvæði og fékk einn mann kjörinn í bæði skiptin. Hreppsnefndarmaður Alþýðubanda- lagsins þar er Benedikt Þorsteinsson. Egilsstaðir: G-listinn hlaut 43 atkvæði nú en náði ekki manni inn í hreppsnefnd, vant- aði aðeins sjö atkvæði. 1966 fékk Alþýðu- bandalagið 36 atkvæði á Egilsstöðum og einn hreppsnefndarmann kjörinn. SUÐURLAND í Suðurlandskjördæmi komu fram tveir G- listar, í Vestmannaeyjum og í Hveragerði og á báðum þessum stöðum varð útkoman með ágætum: Vestmannaeyjar: G-listinn hlaut 543 at- kvæði og tvo menn kjörna, þá Garðar Sig- urðsson og Hafstein Stefánsson. 1966 hafði G-listinn einnig tvo menn í Eyjum, en hafði þá 478 atkvæði. Hveragerði: Alþýðubandalagið hefur aldrei áður borið fram flokkslista í Hvera- gerði. Þar fékk G-listinn 76 atkvæði og Þór- gunni Björnsdóttur kjörna. REYKJANES í Reykjaneskjördæmi komu fram G-listar á 5 stöðum, auk þess sem Alþýðubandalag- ig stóð að H-listanum í Kópavogi. H-listinn tapaði að vísu manni í Kópavogi en bætti þó við sig atkvæðum: Fékk 1956 1196 atkvæði en nú 1252 atkvæði. Bæjarfulltrúar H-listans í Kópavogi eru þau Svandís Skúladóttir og Sigurður Grétar Guðmundsson. Hafnarfjörður: I Hafnarfirði tapaðist einn- ig maður, en vantaði þó aðeins um 30 at- kvæði til þess að fella fjórða mann íhaldsins. G-listinn hafði 336 atkvæði í Hafnarfirði 1966, en núna 391 atkvæði. Keflavík: Fvlgi Alþýðubandalagsins hefur yfirleitt verið talið heldur lítið í Keflavík og 1966 var ekki einu sinni boðið fram þar. Að þessu sinni fékk G-listinn þó nærri þrjú hundruð atkvæði — 283 — og Karl Sigur- bergsson, skipstjóra, kjörinn í bæjarstjórn. Njarðvíkur: Alþýðubandalagið bauð ekki eitt fram í Njarðvíkum síðast, en nú fékk G-listinn þar 84 atkvæði og Oddberg Eir- íksson í hreppsnefnd. Garðahreppur: I Garðahreppi fékk Al- þýðubandalagið mann kjörinn í hreppsnefnd 54

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.