Réttur


Réttur - 01.04.1970, Page 33

Réttur - 01.04.1970, Page 33
INNLEND SglBB ■ VÍÐSJÁ 1 Vorið 1970 er sannkallað baráttuvor; kosningabarátta, harðvítug verkalýðsbarátta og svo barátta námsmanna. Annars staðar í heftinu er sagt frá kosningunum og úrslitum þeirra, kjarabaráttunni og niðurstöðum henn- ar og í þessum greinarstúf gefum við yfirlit yfir námsmannabaráttuna. Það má segja að barátta íslenzkra náms- manna fyrir bættum kjörum hafi hafizt fyrir augum almennings 12. apríl en þá birti a. m. k. Þjóðviljinn skelegga greinargerð SINE, Sambands ísl. námsmanna erlendis og mátti af lestri hennar ráða að íslenzkir námsmenn erlendis hyggðust ekki láta sér nægja álykt- anir, bréfaskriftir og loðin svör ráðamanna. SENDIRÁÐST AKAN Það kom líka á daginn; um það leyti sem 100 ára afmælis Leníns var minnzt um heimsbyggðina — meira að segja í Morgun- blaðinu — tóku nokkrir íslenzkir námsmenn sendiráð íslands í Stokkhólmi. Þetta var mánudaginn 20. apríl, árdegis og barst frétt- in þegar til Islands. Stúdentarnir héldu sendi- ráðinu í tvo til þrjá tíma og sendu frá sér greinargerð þar sem barátta námsmanna er sett í þjóðfélagslegt samhengi — barátta þeirra er talinn óaðskiljanlegur hluti baráttu verkalýðsins fyrir betri kjörum og betra sam- félagi, fyrir sósíalisma. Þessi atburður i Stokkhólmi vakti feikna athygli og hrinti af stað skriðu ályktana frá íslenzkum náms- mönnum um alla Vestur-Evrópu, blöð á ís- landi og Norðurlöndunum hinum birtu frétt- ir og greinar af og til vikum saman, boðað var til funda og ráðstefna, menntamálaráð- herra var á þönum milli funda á milli þess sem hann var í útlöndum, málið var rætt á álþingi og hvar sem fólk hittist á götu, í heimahúsum, í strætisvagni, var talað um þessa töku sendiráðsins. Það fór ekkert á milli mála að aðgerðirnar í sendiráðinu vöktu í upphafi andúð megin- þorra þjóðarinnar. Ráðherrar gerðu sitt til þess að móta almenningsálitið gegn náms- mönnum, Morgunblaðið, Tíminn, Vísir, Al- þýðublaðið, blað hannibalista og sjónvarpið gerðu sér far um að ala á andúð og almennu menntamannahatri í framhaldi af aðgerðun- um 20. apríl. En smá saman fjaraði þessi and- úð út og breyttist í samúð með kjörum ís- lenzkra námsmanna. Var margt sem stuðlaði að því öðru fremur: Málflutningur náms- manna var skýr og augljós. — Þúsundir Is- lendinga höfðu af eigin raun annað hvort sem foreldrar, frændfólk eða námsfólk kynnzt kjörunum af eigin raun. Andúðin sem Gylfi Þ. Gíslason og Morgunblaðið reyndu að magna upp fjaraði út sem fyrr segir. Sumir sögðu að námsmennirnir 11 í Stokkhólmi hefðu skotið yfir markið — en Gylfi skaut ekki aðeins yfir markið, hann lagði til at- lögu við íslenzkt róttækt æskufólk og hann hæfði sjálfan sig. Það kom m.a. fram í kosn- ingaúrslitunum í Reykjavík í vor. 73

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.