Réttur


Réttur - 01.04.1970, Page 42

Réttur - 01.04.1970, Page 42
Stórjarðeigendur og iðjuhöldar hafa löng- um ráðið mestu um stjórn landsins með að- stoð hersins. Allar tilraunir til að breyta eignaréttinum á jarðeignum hafa verið dæmdar sem kommúnismi og frjálslyndir umbótamenn, sem tekið hafa upp þá kröfu hafa orðið að flýja land. I héraðinu Rio Grande eiga til dæmis 9000 stórjarðeigend- ur 52% allra jarðeigna í fylkinu, en 450.000 bændur eru leiguliðar. I Brazilíu eru um 110.000 indíánar, sem lifa enn að fornum hætti. Nýlega var það upplýst að hvítir gúmmísafnendur hefðu út- rýmt hálfum ættflokki indíána á Amazon- svæðinu með því að setja arsinik í sykur sem þeir gáfu þeim. Aðrir 35 ættflokkar indíána á þessu svæði eru í mikilli hættu, Hvítu gúmmísafnendurnir ágirnast lönd Indíán- anna og vilja annað hvort drepa þá eða hrekja þá lengra inn í frumskóginn, eins og þeir hafa verið að gera við þessa frum- byggja síðustu 500 árin. Þessar ofsóknir og útrýmingarherferðir hafa vakið almenna for- dæmingu fólks víða um heim, en þrátt fyrir það gera stjórnvöld í Brazilíu og annars stað- ar í rómönsku Ameríku lítið til að verja rétt indíánanna og taka jafnvel sums staðar þátt í þessum útrýmingaherferðum. Brazilía sleit nýlendutengslum við Portú- gal árið 1822 og varð þá sjálfstætt konungs- ríki, en herinn rak konunginn Don Pedro II frá völdum 1889 og lýsti yfir stofnun lýð- veldis. Fyrsti einræðisherra lýðveldisins da Fonseca gerði ríkið að sambandsríki 20 ríkja og framkvæmdi jafnframt aðskilnað ríkis og kirkju. Brazilía varð illa úti í heimskrepp- unni 1929, er kaffiverðið féll á heimsmark- aðinum. Ari síðar hrifsaði Gemlio Várgas til sín völdin, en hann var úr þjóðlega frjáls- lynda flokknum. Fór hann með völd frá 1930—1945. Vargas stjórnaði ríkinu sam- kvæmt fyrirmynd frá ríki Mussolini á Italíu. Hann barði alla mótspyrnu miskunnarlausi niður. En hann var mjög þjóðlegur og reyndi að halda náttúruauðlindunum og lagði hindr- anir í veg erlendra auðfyrirtækja. A sviði félagsmála var hann með víðtæka umbóta- viðleitni. Hann ávann sér miklar vinsældir, þrátt fyrir einræðishneigð sína, og þær gerðu honum kleift að ná kosningu sem forseti aft- ur 1950 eftir að landinu hafði verið stjórn- að af auðjöfrum og herforingjum í 5 ár. Vargas lenti fjórum árum síðar í útistöð- um við herinn sem leiddi til þess að hann framdi sjálfsmorð. I pólitískri erfðaskrá sinni sakaði hann erlenda aðila um að vinna gegn sér með stuðningi óþjóðlegra afla. Ari síðar var Kubitscheck kjörinn forseti og sat hann við völd til 1961. Þá var Janio Quadros kjör- inn, en hann gafst upp ári síðar vegna and- stöðu hersins og Goulart varaforseti náði samkomulagi við herinn um skerðingu á valdi forsetans. Undanlátsemi Goularts skerti álit hans hjá stúdentum og verkamönnum, sem stutt höfðu hann í átökunum. En her- inn, auðjöfrarnir og Washington höfðu dæmt Goulart sem kommúnista, þar eð hann hugð- ist þjóðnýta raforku, gas og símafyrirtæki landsins, sem alls ekki höfðu rækt sitt hlut- verk. I apríl 1964 hrifsaði herinn völdin úr höndum Goulart, sem kjörinn hafði verið á lýðræðislegan hátt. Það vakti þá mikla at- hygli að Johnson sem þá hafði nýlega tekið við embætti í Washington bauð nýju stjórn- ina velkomna þegar í stað og bar það vott um breytta afstöðu stjórnarinnar í garð ró- mönsku Ameríku, frá því í tíð Kennedys. Herinn lét samþykkja nýja stjórnarskrá árið 1957 og var nýr forseti kjörinn Costa e Silva. Hann er nú látinn og herinn í vanda staddur og þetta stærsta ríki rómönsku Am- eríku rambar á barmi borgarastyrjaldar, sem erlendir fréttaritarar telja að geti brotizt út hvenær sem er. 82

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.