Réttur


Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 47

Réttur - 01.04.1970, Blaðsíða 47
Ernst Thálmann Deutsche Widerstandskámpfer. (Þýzkir andspyrnumenn). 1933— 45. Biographien und Briefe. — Dietz Verlag. Berlín 1970. I—II. Hin kunna útgáfustofnun Dietz Verlag hefur gefið út mikla og merkilega minningabók um þá Þjóðverja, sem féllu í baráttunni við Hitler-fasismann 1933—45: drepnir í fangabúðum, dæmdir til dauða eða tortímt á annan hátt. Þetta er hetjubók þýzkrar frelsis- hreyfingar. Þarna unnu saman kommúnistar, sósialdemókratar og borgaralegir frelsissinnar, börðust saman gegn blóðugri harðstjórn nazismans og létu lifið saman. Alls eru birtar þarna myndir af á fimmta hundrað andfasista, stutt seviágrip, síðustu bréf margra beirra, en alls er minnst á um þúsund þeirra, er lifið létu og er það þó aðeins lítill hluti allra Þeirra, er urðu fasismanum að hráð. Fremst eru myndir og ævi- ágrip þeirra Ernst Thálmanns og Rudolf Breitscheid, kommúnista- °g sósíaldemókrataleiðtoganna, er Rudolf Breitscheid báðir létust i fangabúðunum í Buchenwald í ágúst 1944. Hér skulu aðeins nefnd örfá af þeim nöfnum, sem islenzkir sósíalistar munu margir kannast við frá fyrri tið: Hans Beimler, sem komst úr vitinu i Dachau, en féll i frelsis- styrjöldinni á Spáni, Olgu Benario- Prestes, myrt í gasofnum Bern- burg 1942, Rudolf Claus, dæmdur til dauða og hálshöggvinn 1935, Liselotte Herrmann, fyrsta konan, sem nazistar dæmu til dauða og hálshuggu 20. júní 1938, hún var 29 ára og átti þá fimm ára son. Walter Husemann, gaf út með Schulze-Boysen, Adam Kuckhoff og fleirum leyniblöð, tekinn loks 1942, kvalinn og dæmdur til dauða og hálshöggvinn 1943, 33 ára. Heinrich og Viktor Koenen, bræðrasynir, synir bræðranna Wil- helms og Bernhards Koenen, myrt- ir 1942. Theodor Neubauer, einn af beztu þingmönnum Kommúnistaflokks- ins, háði langa leynilega baráttu, var i ótal fangabúðum, hálshöggv- inn i Brandenburg-fangelsinu 1945. Fiete Schulze, hafnarverkamaður- Hans Beimler inn i Hamborg, sem dæmdur var þrisvar til dauða og í 260 ára fangelsi og hálshöggvinn 1935. Systkinin Hans og Sophia Scholl stúdentar, teknir fyrir flugblaða- dreifingu og drepin 1945. Eugen Schönhaar, einn af foringjum leynibaráttunnar drepinn ásamt John Scheer, Steinfurth o. fl. 1. febrúar 1934. Sonur hans Carlo, sem flúði ásamt móður sinni til Parísar, vann i frönsku mótspyrnu- hreyfingunni, handtekinn og drep- inn 17. apríl 1942 i Paris, 17 ára að aldri. Þannig mætti halda hetjusög- unni áfram. Ágætur inngangur fylgir þessum miklu minningarrit- um. Wiener Tagebuch. Mánaðarrit. — Wien. Franz Marek, sem Réttur hefur áður sagt frá í sambandi við bók hans „Heimspeki heimsbyltingar- innar" (3. hefti 1969) hefur nú tekið að gefa út timarit, sem kem- 87

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.