Réttur


Réttur - 01.07.1972, Side 59

Réttur - 01.07.1972, Side 59
stjóri hins volduga blaðs austurrísku sósíal- demókratanna „Arbeiterzeitung" í Vín. Varð kommúnisti eftir borgarastyrjöldina við fas- ista 1934. Þingmaður 1945 til 1959, frægur fyrir ræðusnild sína. Var menntamálaráð- herra um skeið. Tók eindregna afstöðu gegn innrásinni í Tékkóslóvakíu 1968, er leiddi til harðnandi deilna milli hans og meirihluta miðstjórnar austurríska Kommúnistaflokks- ins, er lauk með brottrekstri hans úr flokkn- um 1970. Það er mikill harmleikur, sem gerist, þeg- ar mesm hæfileikamenn kommúnistísku hreyfingarinnar eru reknir úr flokkum sín- um og síðan tekið að brennimerkja þá sem „endurskoðunarsinna" eða með öðrum gat- slitnum, meiningarlausum ónöfnum. Það er ekki aðeins að viðkomandi flokkar missi þannig menn, sem voru þeim dýrmætir, ef rétt var að farið. Það er einnig — oft óbæt- anlegt — tjón fyrir þá, sem reknir eru, og síðan hraktir til „hægri" með sífelldum árás- um og ódrengilegum brennimerkingum. Bucharin vitnaði í ræðu, er hann flutti á 6. heimsþingi Alþjóðasambands komm- únista 1928 sem formaður þess sam- bands, í óbirt bréf, sem Lenin eitt sinn skrif- aði honum og Sinowjew, þar sem hann sagði á þessa leið: „Ef þið rekið alla — ekki sér- staklega þæga en vitra - menn frá ykkur og skiljið bara eftir þæga heimskingja, þá mun- ið þið áreiðanlega eyðileggja flokkinn." — Ýmsir kommúnistafl^kkar mættu hafa þessa aðvörun í huga. Ernst Fischer andaðist rúmu ári eftir að Georg Lukács dó, hinn frægi ungverski marx- isti og bókmenntafræðingur. Lukács hafði einnig lent í deilum við flokkinn og verið rekinn. En ungverski flokkurinn hafði sýnt sjálfstæði sitt og víðsýni í því að taka þenn- an nafnkunnasta kommúnista Ungverjalands í flokkinn aftur. Fischer reit síðustu árin margar greinar í mánaðarrit austurrískra marxista, Wiener Tagebuch, sem Franz Marek er ritstjóri að. En heilsa hans var þessi síðustu ár mjög slæm, þótt áhugann og skerpuna ei skorti. J. B. MARKS Þann 1. ágúst sl. lézt John B. Marks, for- maður Kommúnistaflokks Suður-Afríku, ágætur leiðtogi hetjuflokks, sem berst hinni erfiðustu baráttu við harðstjórn hvítra fas- ista. John B. Marks var fæddur 21. marz 1903 og var því 69 ára, er hann lézt. Hann var sjöunda barn verkamannafjölskyldu í Vest- ur-Transval, kynntist frá blautu barnsbeini fátækt og kúgun þeirri, er svertingjar voru beittir. En þrátt fyrir alla erfiðleika og auð- 187

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.