Réttur - 01.10.1972, Page 2
á friðsamlegan hátt sem Hitlersher þess misheppnaðist að ná með báli og
brandi. Fyrir auðhringi Vestur-Þýzkalands (— og þá ensku dreymir um að
vera með) tekur nú tímabil hins kalda friðar við af skeiði hins kalda stríðs
og þá er það þeirra kalda hyggja að ganga af hverju fyrirtækinu á fætur
öðru dauðu, unz örfáir einokunarhringir drottna allsráðandi yfir atvinnulífi
Vestur-Evrópu, auðvitað hampandi hugsjón frelsisins líkt og Nato lýðræð-
isins.
★ o *
,,Réttur'‘ ræðir að þessu sinni auk annara ýms þau mál, sem minnzt er á
hér að framan. En alveg sérstaklega verða þó rædd hér ýmis vandamál, sem
örlögum geta valdið í verklýðshreyfingunni og vart eru rædd annarsstaðar.
Svo hefur það verið og verður áfram.
Ennfremur eru hér og hafa verið að undanförnu greinar, sem snerta sögu
sósíalismans á íslandi. Þannig er nú sagt nokkuð ger frá þeim merka manni
Guðjóni Baldvinssyni frá Böggvisstöðum, er dó ungur í upphafi þessarar
aldar, og frá ýmsum aðstæðum kringum ræðu Þorsteins Erlingssonar í Dags-
brún 1912. Það er svo um atburði í upphafi aldarinnar að heimildirnar eru
oft af skornum skammti og getur því ýmislegt missagzt, þótt reynt sé að
segja rétt. Væri „Rétti" þökk á ef menn vissu betur um ýmislegt sem sagt er
í þessum greinum eða geymdu heimildir, sem höfundi eru ókunnar, að slík
vitneskja væri látin ritstjóra í té.
Áframhaldið á stefnuskrá Alþýðubandalagsins átti að koma í þessu hefti,
en verður vegna þrengsla að bíða og kemur í 1. hefti næsta árgangs.
Það er afar mikilvægt fyrir sósíalismann á íslandi, verklýðshreyfinguna
alla og baráttu fyrir fullu þjóðfrelsi voru, að útbreiðsla „Réttar" aukist stórum.
Allt ritstarf við „Rétt“ er sjálfboðastarf. Takmark tímaritsins er það eitt að
afla hugsjón sósialismans fylgis og styrkja innviðu þeirrar hreyfingar, er
„Réttur" berst fyrir. Hann verður því fyrst og fremst að treysta á lesendur
sína og velunnara um útbreiðslu og þarmeð aukin áhrif, sem um leið gerði
kleift að gera „Rétt" en stærri og fjölbreyttari en nú. Árgangur sá, sem lýkur
með þessu hefti er hinn stærsti, sem enn hefur komið í hinu nýja formi.
„Réttur” heitir því á lesendur sína að gera með komandi ári mikið átak til að
útvega nýja áskrifendur. Enn er það svo að hver nýr áskrifandi, er þess
óskar, fær árgangana 1968 til 1972 fyrir 100 kr. árganginn, að viðbættu send-
ingargjaldi, er hann hefur greitt árgjald sitt. Gildir þetta boð fyrst um sinn,
meðan birgðir enn endast. En á þær gengur, svo bezt er að bregða við sem
fyrst fyrir þá, sem eignast vilja nýja Rétt. Árgangurinn 1967, hinn fyrsti í
nýja forminu, kostar 200 kr. og er lítið til af honum.
Fyrir hvern sósíalista, hvern verklýðs- og þjóðfrelsis-sinna, er „Réttur"
ómetanlegt vopnabúr, sem ætíð þarf að hafa við höndina. Því er efling hans
og útbreiðsla allri hreyfingunni nauðsyn.