Réttur - 01.10.1972, Side 21
Norðurlönd
— hvað nú?
Eftir að Noregur hefur tekið afstöðu gegn
inngöngu í Efnahagsbandalagið (EB), en
Danmörk með, bíður nú það hlutskipti þeirra
norrænu ríkja, sem frjáls eru af klafa EB, að
taka ákvörðun um hvernig þau móta sam-
eiginlega stefnu sína innan Norðurlanda og
utan.
Aður en vikið verður nánar að ýmsum
hugmyndum þar um, er rétt að fara nokkrum
orðum um Efnahagsbandalagið.
AUÐMANNASTÓRVELDI EVRÓPU
Efnahagsbandalagið er — eða verður eftir
nýjár — eitt ríki, hvað framleiðslu- og við-
skiptamál snertir. Allt miðast bandalagið við
það eitt að tryggja auðmagninu sem víðtæk-
ast „frelsi ', þ.e. ótakmarkaða arðránsmögu-
leika gagnvart verkalýð og neytendum.
Efnahagsbandalagið er sameining auð-
mannastétta Evrópu fjármálalega, til þess að
þær verði sem sterkastar: inn á við gagnvart
verkalýð þessara landa, út á við gagnvart
Bandaríkjunum, Sovétríkjunum og öðrum
stórveldum heims. Fögur orð um „einingu
Evrópu" o.s.frv.eru aðeins til að dylja flagðið
undir hinu fagra skinni.
Þessar auðmannastéttir Evrópu, sem þarna
skríða saman, hafa leitt tvenn heimsstríð yfir
mannkynið á þessari öld. Þessar auðmanna-
stéttir hafa áður skipt veröldinni upp á milli
sín í nýlendusvæði til arðráns og kúgunar og
hyggjast nú sameinast, — af því þær voru
hver um sig orðnar of veikar gagnvart nýju
stórveldunum, — og ætla sér að halda áfram
rányrkju og nýlendukúgun í nýju formi
gagnvart smærri og veikari ríkjum.
Stórfyrirtæki Efnahagsbandalagsins renna
saman í æ stærri heildir. Auðhringar og
bankar sameinast í risavöxnum einokunar-
hringum, sem hafa tögl og hagldir í við-
skiptalífinu. Efnahagsbandalagið er og verð-
ur fyrst um sinn auðhringaveldi, „Vestur-
Evrópa h.f."
Þetta auðhringaveldi skortir hvorki auð
né vald. En þá, sem stjórna því, skortir vit
213