Réttur - 01.10.1972, Qupperneq 53
Pétur G. Guðmundsson
Þorsteinn Erlingsson
Ottó N. Þorláksson
að hafa sagt hve sér sárnaði niðurlægingin i þess-
um efnum hér heima:
„Frá minni hendi get ég nú ekki bent á nema
ofurlitið af góðum vilja. Og það vita margir góðir
menn í þessu félagi, að ég hefi boðið fram þá litlu
fræðslu, sem ég gat veitt, ef menn hefðu séð sér
gagn að því að þiggja það. Af þvi það er sann-
færing mín að fræðslan og þekkingin komi ykkur
upp á samtaka og sigurbrautina. Þessi sannfæring
mín er orsök í því að ég stend hér í kveld. —
Sannfæringin um það, að SANNLEIKURINN MUNI
GERA YKKUR FRJÁLSA.* Þeim eina konungi vil
ég vinna það, sem ég vinn.“
Máske hefur ádrepa Þorsteins og bardagahvöt
ýtt undir þá sósíalista og brautryðjendur í verka-
lýðssamtökum, sem fyrir voru i félaginu og valdið
nokkru um að Verkamannafélagið Dagsbrún hófst
nú handa um að útbreiða sósíalistiska þekkingu á
þjóðfélagsástandinu utan lands og innan.
I janúar 1913 er kosin ný stjórn: Pétur G. Guð-
mundsson formaður (það hafði hann og verið 1910
* Leturbreyting í ræðunni eins og hún er prentuð.
og 1911), Sighvatur Brynjólfsson varaformaður,
Ottó N. Þorláksson ritari, Jón Jónsson (Tjarnargötu
6) fjármálaritari. Og i maímánuði 1913 hefst Dags-
brún handa um útgáfu „Verkamannablaðsins", var
Jón Jónsson ábyrgðarmaður, en Pétur G. afgreiðslu-
maður og mun um leið hafa skrifað meginið af
blaðinu. Það blað lifði fram í ársbyrjun 1914.
(Síðasta tölublað kom út 10. jan. 1914).
Það hafði verið ágreiningur um útgáfu blaðsins
og segir svo um hann í afmælisblaði Dagsbrúnar
á 30 ára afmælinu 1936:
„Vorið 1913 samþykkti Dagsbrún að hefja út-
gáfu Verkamannablaðsins. Um þær mundir var uppi
allmikill skoðanamunur í félaginu og óvæg átök
milli hinna eldri og ihaldssamari manna annarsveg-
ar og hinsvegar þeirra, sem kröfðust meiri og við-
tækari starfsemi. Ihaldssamari mennirnir höfðu bet-
ur um sinn. Þess galt Verkamannablaðið og lagð-
ist það niður eftir hálft ár. Fjárhagslegur halli af
útgáfu blaðsins greiddur úr félagssjóði Dagsbrún-
ar nam þó aðeins kr. 15,28."
I bæjarstjórnarkosningum 26. janúar 1914 er D-
listinn í kjöri frá Dagsbrún og á honum eru:
Sighvatur Brynjólfsson næturvörður (varaform.
Dagsbr.).
245