Réttur - 01.10.1974, Síða 15
ólíkur „kínverski sósíalisminn'' myndi verða
þeim evrópska.s) Og engan þarf að undra
þótt sá sósíalismi, er þróast mun í stóriðju-
löndum gömlu borgarabyltinganna Englandi
og Frakklandi eftir að þriðjungur heims er
genginn sósíalisma á hönd og imperíalisminn
á fallanda fæti, verði furðu ólíkur þeim, er
þróaður var við illan arf og erfiðar aðstæður
á tímum Stalíns, þegar Sovétríkin, eina land
sósíalistískrar byltingar í heiminum, voru sem
virki umsetið fjandmönnum.
Tökum dæmið af því, sem burgeisastéttin
beitir mest og skæðast gegn sósíalismanum
nú: að félags- og málfrelsið séu í hættu, ef
hann sigrar, — af því hvorttveggja er tak-
markað í Sovétríkjunum. Mönnum hættir oft
við að gleyma staðreyndum sögunnar, þegar
áróður auðvaldsins er mestur.
Borgarastéttin bannaði strax í upphafi
veldis síns öll verkamannasamtök. Aratug-
um saman urðu verkamenn að berjast til
þess að knýja fram félagafrelsið sér til handa
og það í sjálfu „fyrirmyndarlandi lýðræðis-
ins" Englandi. Og prentfrelsisins nutu þeir
aðeins, ef þeir bláfátækir gátu séð af pen-
ingum til útgáfu blaða. Það voru og eru
raunverulega peningarnir, sem hafa prent-
frelsið, ekki mennirnir. Og alltaf áttu verka-
menn — og eiga enn — ofsóknir og bann
yfir höfði sér, — voru sviftir hvortveggja
frelsinu, hvenær sem auðmannastéttirnar
álitu þau vopn alþýðu of hættuleg.
Verklýðshreyfing Vesturlanda mun vissu-
lega standa vörð um félagafrelsið og mál-
frelsið, — einnig andstæðingum sínum til
handa, — eftir að hún er orðin forustuaflið
og sterkasti valdaaðili þjóðfélagsins. Verka-
lýður Vestur-Evrópu hefur sjálfur orðið að
berjast og fórna miklu til að vinna þetta
frelsi úr helgreipum auðvaldsfasistanna, er
rændu hann því — og hann veit einnig —
af dýrkeyptri reynslu, hver lífsnauðsyn hreyf-
ingu hans er gagnrýnin, einnig eftir að ríkis-
valdið er komið í hans hendur. „Verklýðs-
hreyfingin á allt undir hvassri gagnrýni á
ríkjandi þjóðfélag. Gagnrýni er lífsviðurværi
hennar. Hvernig gæti hún sjálf ætlað að
koma sér undan gagnrýni ,viljað banna um-
207